Andlát: Þórunn Gestsdóttir

Þórunn Gestsdóttir. stækka

Þórunn Gestsdóttir.

Þórunn Gestsdóttir, útgefandi og ritstjóri, er látin, 69 að aldri.

Þórunn fæddist í Reykjavík 29. ágúst 1941. Foreldrar hennar voru Hjördís Guðmundsdóttir og Gestur Benediktsson.

Þórunn lauk námi í Kvennaskólanum 1958 og í Leiðsögumannaskólanum 1970. Þá lauk hún diplómanámi í opinberri stjórnsýslu hjá Endurmenntun HÍ 2002. Þórunn starfaði sem bankastarfsmaður og flugfreyja í upphafi starfsferils síns. Hún var leiðsögumaður um tíma og blaðamaður á Vísi og DV á árunum 1980-1986. Hún var ritstjóri Vikunnar 1986-1988 og ritstjóri og útgefandi ferðatímaritsins Farvís-Áfangar 1988-1994. Þá var hún ritsjóri Lions-blaðsins 1994-1996. Þórunn starfaði hjá Ísafjarðarkaupstað frá 1996-1998. Þórunn var sveitarstjóri Borgarfjarðarsveitar 1998-2002 og starfaði hjá RÚV 2003-2007. Þórunn var varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1978-1990 og var formaður jafnréttisnefndar borgarinnar í fjögur ár. Hún var formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna 1985-1989. Hún átti sæti í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins og í flokksráði um tíma. Þórunn var fjölumdæmisstjóri Lions og fyrsta konan hér á landi til að gegna embætti svæðisstjóra Lions.

Þórunn lætur eftir sig fimm börn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Senda

Innlent »

Þingmenn Hreyfingarinnar standa að Breiðfylkingunni.

Vilja efla siðferði í stjórnmálum

12:53 Stofnfundur Breiðfylkingarinnar hófst á hádegi en að henni standa Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og einstaklingar úr stjórnlagaráði. Í kjarnastefnu fylkingarinnar segir að leysa verði skuldavanda heimilanna og efla siðferði í stjórnmálum. Meira »
Lilja Mósesdóttir.

Enginn með einkarétt á Samstöðu

12:44 Lilja Mósesdóttir, formaður stjórnmálaflokksins Samstöðu, segir að átta félög hafi verið skráð í fyrirtækjaskrá undir nafninu Samstaða. Eitt af þeim var stjórnmálaafl á landsvísu sem breytti nafni sínu til að Samstaða Lilju gæti fengið nafn sitt. Meira »

Yrði ōðruvísi biskup myndskeið

biskupsframbod gunnar
11:45 MBL Sjónvarp ræðir á næstu vikum við frambjóðendur í biskupskjörinu sem fer fram á næstunni. Þannig gefst almenningi tækifæri á að kynnast þeim sem eru í framboði þó kosningaréttur sé ekki almennur. Séra Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju ríður á vaðið. Meira »

Lætur hátt í fangaklefa

10:51 Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð að samkvæmi við Smiðjustíg á sjöunda tímanum í morgun þar sem einn gestanna var með uppsteit. Að sögn lögreglu var maðurinn óviðráðanlegur af bræði og réðst hann á lögreglumenn sem hugðust vísa honum úr samkvæminu. Hann var handtekinn og er í fangaklefa, þar sem hann lætur hátt, að sögn lögreglu. Meira »

Leikstjórinn kom inn sem ljón

Skot úr sýningunni um Galdrakarlinn í Oz.
10:09 Leikarinn Halldór Gylfason var fluttur á slysadeild í gær þegar hann slasaðist við sýningu á Galdrakarlinum í Oz. Lúga opnaðist fyrir mistök á sviðinu þegar Halldór gekk um það og datt hann niður um hana. Tjaldið var snögglega dregið fyrir og varð úr að leikstjóri sýningarinnar kláraði sýninguna. Meira »

Handteknir fyrir að keyra á mann

Ekið var á manninn í Austurstræti.
11:03 Tveir menn voru handteknir á heimili annars þeirra á sjötta tímanum í morgun vegna gruns um að annar hvor þeirra hefði ekið á mann í Austurstræti á fimmta tímanum. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar líður á daginn. Meira »

Martröð í matarboði myndskeið

Stuttmyndahornið: Martröð í matarboði
10:33 Myndin Takk fyrir mig er fimmta myndin sem MBL Sjónvarp sýnir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndin fjallar um matarboð sem virðist ætla að ganga vel þar til einn gestanna uppgötvar skuggahliðar gestgjafans. Meira »

Fjöruverðlaun eftir viku

Bækur níu kvenna eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna.
09:42 Misritað var í Morgunblaðinu í gær að Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verði afhent í Iðnó í dag, en rétt er að það verður eftir viku, 18. febrúar næstkomandi, en þá verður haldin Góugleði í Iðnó. Gestur verðlaunahátíðarinnar verður rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. Meira »

Enn skelfur við Grímsey

Skjálftar á landinu í morgun.
09:38 Töluverður fjöldi jarðskjálfta hefur mælst í nótt og fram á morgun við Grímsey. Sá stærsti sem mælst hefur var um tvö stig og voru flestir af svipuðum styrkleika. Meira »

Fíkniefnasali handtekinn

08:44 Lögerglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann, sem var að selja fíkniefni við veitingahús í borginni en maðurinn var með fíkniefni í söluskömmtum innanklæða. Meira »

Opið á skíðasvæðum

Fólk á skíðum.
09:26 Þó svo auð jörð sé í höfuðborginni er víða hægt að skíða í dag. Þannig fer fram Oddskarðssmót og þar verður keppt í svigi 9 til 12 ára. Opið verður í Oddsskarði frá klukkan 10 til kl. 16 og eru aðstæður býsna góðar. Einnig er opið á skíðassvæði Dalvíkur og á skíðasvæðinu í Tindastól. Meira »

Braut rúðu í lögreglubíl

08:40 Maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði í nótt eftir að hann braut rúðu í lögreglubíl.  Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjónkeppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka

Geir H. Haarde fyrir Landsdómi.
Í gær, 19:52 Jafnmargir eru því fylgjandi að ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verði dregin til baka og andvígir því, samkvæmt niðurstöðum úr könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins sem greint var frá í kvöldfréttum Stöðvar 2. Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Úrslitakeppnin hafin í Hörpu

Keppnin fer fram í Hörpu.
Í gær, 20:33 Úrslitakvöld forkeppni Evróvisjón er hafið í Hörpu, en í kvöld kemur í ljós hverjir keppa fyrir hönd Íslands í lokakeppni söngvakeppninnar sem fram fer í Bakú í Aserbaídjan síðar á árinu. Meira »

Fjör á 112-deginum á Húsavík

Börnum og unglingum var boðið í stutta sjóferð á Jóni Kjartanssyni, báti Björgunarsveitarinnar Garðars.
Í gær, 17:35 Víðar var haldið upp á 112-daginn en aðeins í Reykjavík. Þannig lögðu fjölmargir leið sína í björgunarsveitarhúsið Naust á Húsavík þar sem viðamikil dagskrá fór fram. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Polaris Fusion 2006 600 cc
Allur yfirfarinn. 121" x 15" x 36.mm, negling - Brúsgrind - Handahlífar. Með sna...
TEK AÐ MÉR AÐ FALDA BUXUR, SKIPTA UM RENNILÁSA OFL
Tek að mér að falda buxur, skipta um rennilása, þrengja eða víkka fatnað og flei...
Er tölvan hæg eða biluð, ódýrari tölvuaðstoð
Þjónusta fyrir þig þegar þér hentar! Tek að mér að uppfæra, rykhreinsa og laga ...
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
 
Sölumaður óskast
Afgreiðsla/verslun
Sölumaður óskast til starfa í húsgag...
Tölvunarfræðingur forritari
Lager/útkeyrsla
Tölvunarfræðingur â€" forr...
Stúkan hamar
Félagsstarf
l HAMAR 6012020719 III...
Yfirkokkur
Hótel- og veitingarekstur
Yfirkokkur Fjalakötturinn Restaura...