Tvöfalt meira húsnæði byggt en þörf var á
Kárahnjúkastífla. mbl.is/Steinunn
Í skýrslu, sem gerð hefur verið um samfélagsleg áhrif álvers- og virkjunarframkvæmda á Austurlandi, kemur fram að stæstu mistökin í tengslum við framkvæmdirnar virðist hafa verið gerð á sviði húsnæðismála. Byggðir voru 135 þúsund fermetrar af húsnæði en spár gerðu ráð fyrir að þörfin væri 75-80 þúsund fermetrar.
Verð á húsnæði hækkaði mikið í byrjun framkvæmdatímans við Kárahnjúka en hækkunin gekk að mestu til baka í byrjun rekstrartíma virkjunarinnar og álversins í Reyðarfirði. Í október 2009 stóðu 218 íbúðir auðar á miðsvæðinu, mest í fjölbýli en einkum var of mikið byggt af þeirri tegund húsnæðis.
Þá segir í skýrslunni, sem unnin var á vegum Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri, að aukið samráð sveitarfélaga í skipulagsmálum í tengslum við framkvæmdir sem þessar sé æskilegt. Tækifæri til að skipuleggja betur byggð bæjanna, sem uxu hvað mest á framkvæmdatímanum, virðist hafa glatast.
Í skýrslunni kemur fram, að grunngerð samfélagsins styrktist mjög á framkvæmdatímanum og megi þar einkum nefna nýja útflutningshöfn sem sé önnur stærsta á landinu og nýja vegi.
Þá hafi tekjur sveitarfélaga hækkað mikið en afkoma þeirra sé hins vegar ekki í samræmi við það. Þegar dró úr framkvæmdum lækkuðu tekjur
Fljótsdalshéraðs en tekjur Fjarðabyggðar halda áfram að hækka. Efnahagsáfall þjóðarinnar árið 2008 hafi komið illa við þau líkt og mörg önnur sveitarfélög. Bæði sveitarfélögin hafi hins vegar framkvæmt mikið, m.a. þar sem þau virðist hafa verið að keppa um nýja íbúa og starfsemi.
Í skýrslunni kemur einnig fram, að þátttaka kvenna í starfsemi álversins í Reyðarfirði hafi verið mikil og umtalsvert meiri en í hinum álverunum hér á landi, raunar sú mesta í álverum Alcoa. En hlutfallsleg stærð fyrirtækisins valdi því, að það hafi mikil áhrif á taktinn í samfélaginu. Margt bendi til að 12 tíma vaktakerfi álversins henti illa ákveðnum hópum starfsmanna, einkum barnafólki.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 13. október 2010, Innlent Fjárfesta fyrir 86 milljarða
- Miðvikudagur, 18. maí 2011, Innlent Aldrei fleiri viðtöl
- Miðvikudagur, 15. júní 2011, Innlent Verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur
- Miðvikudagur, 31. ágúst 2011, Innlent Stefna að því að hefja jarðvinnu á lóðinni næsta vor
- Laugardagur, 28. maí 2011, Innlent Hreinsa þarf 200 íbúðarhús
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































