Stórauka þarf fjárfestingu

Samtök atvinnulífsins segja, að ríkisstjórnin verði að gera allt sem í hennar valdi standi til að eyða þeirri óvissu sem nýjar hagtölur gefi til kynna og bendi til þess að staðan sé mun lakari en áður var talið. Þar skipti mestu, að ríkisstjórnin sýni skýran og ótvíræðan vilja til þess að fjárfestingar í atvinnulífinu og innviðum samfélagsins aukist og athafnir fylgi orðum.

„Stórauknar fjárfestingar eru forsenda hagvaxtar á næstu árum. Auknar fjárfestingar skapa bæði atvinnu og eftirspurn á framkvæmdatímanum, en þær leggja jafnframt grunn að nýjum og arðbærum störfum til lengri tíma og bæta þannig lífskjör þjóðarinnar í bráð og lengd," segir í ályktun Samtaka atvinnulífsins.

Þar segir, að þróun á vinnumarkaði sýni minnkandi atvinnuleysi og að fjöldi starfa á fyrri árshelmingi þessa árs hafi verið svipaður og í fyrra. Í síðustu viku hafi Hagstofan svo birt aðrar tölur sem gefi til kynna, að afraksturinn af störfum þjóðarinnar hafi verið 7,3% samdráttur í landsframleiðslu milli fyrri árshelminga 2009 og 2010. 
 
„Í ríkjum með áreiðanlegar hagtölur væri slíkt framleiðniáfall í atvinnulífinu tilefni til neyðarviðbragða og rannsókna, en íslenskt atvinnulíf þarf að búa við óvissu og óáreiðanlegar hagtölur," segir í ályktuninni.  
 
Þá segir, að lítil og meðalstór fyrirtæki þurfi að hafa aðgang að lánsfé á viðráðanlegum kjörum og skattaleg kjör verði að vera þeim hagstæð svo þau geti fjárfest. Stór fjárfestingaráform í atvinnulífinu, þ.e. í orkuframleiðslu og orkunýtingu, verði að ná fram að ganga.
 
„Stórfjárfestingar í atvinnulífinu dragast enn og ríkisstjórnin verður að taka afgerandi pólitíska forystu til þess að af þeim verði. Ríkisstjórnin verður einnig að vinda ofan af fjölmörgum mistökum við skattlagningu atvinnulífsins sem gerð voru síðastliðinn vetur þannig að öll íslensk fyrirtæki, stór og smá, hafi ótvíræða hvata til fjárfestingar og atvinnusköpunar. Áform um aðkomu lífeyrissjóða að mikilvægum fjárfestingum í samgöngumannvirkjum og öðrum innviðum samfélagsins þurfa jafnframt að ganga eftir."
 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert