ESA rannsakar bankana

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) tilkynnti íslenskum stjórnvöldum í dag um þá ákvörðun sína um að hefja formlega rannsókn á því hvort kaup nýju bankanna þriggja á eignum peningamarkaðssjóða við slit  sjóðanna í október 2008 hafi falið í sér ríkisaðstoð í skilningi EES-samningsins.

Alls er um að ræða nærri 84 milljarða króna viðskipti, þar af 63 milljarðar í Landsbanka, 12,9 milljarðar í Íslandsbanka og 7,7 milljarðar króna í Arion banka, að því er kemur fram á heimasíðu ESA. Segir ESA að vafi leiki á, að þessi kaup hafi verið á viðskiptalegum forsendum. 

Fjármálaráðuneytið segir á heimasíðu sinni, að það hafi í samskiptum við ESA komið því skýrt á framfæri að stjórnvöld hafi engin fyrirmæli gefið um kaup á eignunum úr  sjóðunum.  Í ákvörðun ESA um um formlega rannsókn felist hins vegar sú afstaða stofnunarinnar að hugsanlega hafi falist ríkisaðstoð til handa rekstrarfélögum peningamarkaðssjóðanna, í ákvörðunum nýju bankanna.

Kvörtun vegna málsins barst ESA í apríl 2009 og fjármálaráðuneytið hefur síðan þá upplýst stofnunina um hvernig kaup nýju bankanna á eignum úr peningamarkaðssjóðum bar að, hvernig eignir voru verðmetnar, o.fl.  Þessara upplýsinga hefur verið aflað frá bönkunum og rekstrarfélögum peningamarkaðssjóðanna.

Segir ráðuneytið, að samkvæmt upplýsingum, sem borist hafi frá hverjum banka, hafi ákvarðanir um kaup á eignum úr sjóðunum verið teknar á viðskiptalegum forsendum. Sjóðsfélagar hafi að miklum meirihluta verið viðskiptavinir bankanna og bankarnir talið brýnt við þær aðstæður, sem ríktu í október 2008, að eyða óvissu sem uppi var um endurheimtur úr peningamarkaðssjóðum.

ESA segir hins vegar, að íslensk stjórnvöld hafi að mati stofnunarinnar ekki sýnt fram á, að bankarnir hafi tekið sjálfstæðar ákvarðanir í þessu máli án afskipta ríkisins. Ákvörðunun um að kaupa eignir peningamarkaðssjóðanna hafi verið teknar af bráðabirgðastjórnum bankanna, sem þá voru nýstofnaðir og í eigu ríkisins, nokkrum dögum eftir að stjórnirnar voru skipaðar. Allir bankarnir hafi síðan tapað verulegum fjármunum á þessum kaupum og þurft að afskrifa eignirnar.

Ráðuneytið segir, reikna megi með að niðurstaða hinnar formlegu rannsóknar ESA liggi fyrir á næsta ári. Endanleg ákvörðun ESA um hvort ríkisaðstoð hafi falist í umræddum ákvörðunum og hvort slík ríkisaðstoð teljist ólögmæt, yrði síðan kæranleg til EFTA-dómstólsins.

Vefur fjármálaráðuneytisins

Vefur ESA

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Mætti innbrotsþjófum í forstofunni

12:05 Húsráðanda í Reykjanesbæ brá töluvert þegar hann kom heim til sín aðfaranótt laugardagsins en í forstofunni mættu honum tveir bláókunnugir karlmenn. Þeir tóku báðir til fótanna og hurfu út í nóttina. Meira »
Búast má við fjölda fólks í sundi í dag.

Veðurblíða víða um land

11:35 Hiti fer allt upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag en að sögn veðurfræðings hjá Veðurstofu Íslands verður mjög gott veður um allt land í dag og næstu daga. Meira »

Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af

11:08 Sautján ökumenn óku yfir leyfilegum hámarkshraða við umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurnesjum um helgina. Ellefu gerðust brotlegir með þeim hætti á aðeins þremur klukkustundum í kringum miðnætti í gær. Meira »

Ferry heillaði í Hörpu

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.
00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Kosningamiðstöð Þóru opnuð

Þóra Arnórsdóttir.
10:48 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg í dag.   Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
ÁRSREIKNINGAR LÖGAÐILA
Ársreikningar lögaðila (ehf.) Færsla á bókhaldi, ...
Útilegudót óskast
Óska eftir að kaupa GAS-hitara, kælibox fyrir 220V/12V ekki mjög lítið og fleira...
Á besta stað í Borgarnesi
Verslunar og þjónustuhúsnæði til leigu uppl í 4371055 8928685...
 
Aðalfundarboð félag skipstjórnarmanna

Félag skipstjórnarmanna Aðalfundarboð...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...
15269 sumarhúsverkmenntaskóli akureyrar
Til sölu
Tilboð óskast í s...