673 milljóna niðurskurður
Stúdentaráð Háskóla Íslands segir, að fyrir liggi að niðurskurður á fjárframlögum til skólans á næsta ári verði að lágmarki 7,5% en það svari til 673 milljóna króna. Það svari til reksturs læknadeildar skólans í eitt ár og reksturs sálfræðideildar HÍ í rúmlega fjögur ár.
Þetta kemur fram í skýrslu, sem Stúdentaráð hefur gert. Segir þar ljóst, að niðurskurður menntamálayfirvalda á
fjárveitingum til menntakerfisins hafi nú þegar haft töluverð áhrif
innan Háskóla Íslands, og birtist það til dæmis í sameiningu og fækkun
námskeiða og gjaldtöku fyrir upptökupróf. Enn fremur hafi háskólinn
ákveðið að taka ekki við nýnemum í haust í þrjár námsleiðir, fornleifafræði, ritlist og rússnesku.
„Ef þessi þróun heldur áfram líkt og á horfir án inngrips stjórnvalda munu gæði menntunar rýrna sem og jafnrétti til náms heyra sögunni til Orðspor Háskóla Íslands sem virt menntastofnun mun laskast verulega," segir í skýrslunni.
Þar segir einnig, að Háskóli Íslands sé stofnun sem verði að verja fyrir niðurskurði með öllum tiltækum ráðum. Á sama tíma og sömu fjárhæðir séu greiddar úr ríkiskassanum fyrir nemendur í einkaskólum jafnt sem ríkisreknum skólum hljóti eðlileg forgangsröðun að hafa bjagast verulega.
„Þetta er jafnframt ólíkt því sem tíðkast á Norðurlöndunum þar sem dregið er úr framlögum til einkarekinna skóla sem nemur skólagjöldunum sem stúdentum er gert að greiða. Taka verður fullt tillit til mismunandi rekstrarforms menntastofnana ríkisins og þar með ábyrgð einkarekinna skóla á sínum eigin rekstraröryggi. Á tímum sem þessum er jafnframt vert að spyrja hvort þörf sé á sjö háskólum í rúmlega 300 þúsund manna samfélagi," segir í skýrslunni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 6. október 2010, Innlent Starfsfólk mótmælir í Eyjum
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Vilja breyta skipulagi Stúdentaráðs
- Föstudagur, 4. september 2009, Innlent Stúdentaráð HÍ fordæmir fyrirhugaðan niðurskurð
- Mánudagur, 7. september 2009, Innlent Stúdentaráð fordæmir niðurskurð
- Fimmtudagur, 28. janúar 2010, Innlent Peningagjöf í rannsóknarsjóð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































