Fréttaskýring: Ágreiningur um hve marga ætti að ákæra

stækka

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Morgunblaðið Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is
Ekki mun hafa verið full samstaða um það innan Samfylkingarinnar hversu mörgum fyrrverandi ráðherrum bæri að birta ákæru þegar landsdómur yrði kallaður saman til þess að fjalla um hugsanlega ábyrgð fyrrverandi ráðherra úr ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar samkvæmt lögum um ráðherraábyrgð.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins hefur Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra verið þeirrar skoðunar að birta bæri þeim Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi utanríkisráðherra, kæru, en Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mun vera þeirrar skoðunar að birta beri fjórum fyrrverandi ráðherrum ákæru, þ.e. þeim Björgvini Sigurðssyni, fyrrverandi viðskiptaráðherra, og Árna M. Mathiesen, fyrrverandi fjármálaráðherra, einnig, auk þeirra Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.

Heimildir Morgunblaðsins herma að allar líkur séu á því að forsætisráðherra hafi síðasta orðið í þessum efnum og fyrrverandi ráðherrarnir sem birt verður ákæra verði fjórir talsins, en Össur hefur lagt mikla áherslu á að sérstakur skjólstæðingur hans og uppeldissonur í pólitík, Björgvin G. Sigurðsson, verði ekki dreginn fyrir landsdóm. Niðurstaða liggur ekki fyrir og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fór allt í hund og  kött á fundi Samfylkingarinnar síðdegis í gær, þar sem stefnt var að því að ná samstöðu um málið.

Efasemdir Sjálfstæðisflokksins um að taka þátt í hinni þverpólitísku samstöðu, sem stefnt var að með störfum þingmannanefndarinnar, hafa, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, stóraukist eftir gærdaginn.

Rétt er þó að taka fram að þrátt fyrir fund þingnefndarinnar síðdegis í gær, sem stóð langt fram á kvöld, er störfum nefndarinnar enn ekki lokið. Samkvæmt sömu upplýsingum mun nefndin þó ótrauð stefna að því að gera grein fyrir niðurstöðum í störfum sínum síðdegis á laugardag.

Lögin um landsdóm

Fyrsta og önnur grein laga um landsdóm eru svohljóðandi: „1. gr. Landsdómur fer með og dæmir mál þau, er Alþingi ákveður að höfða gegn ráðherrum út af embættisrekstri þeirra.

2. gr. Í landsdómi eiga sæti 15 dómendur, og eru þeir þessir:

a. [þeir fimm dómarar við Hæstarétt sem hafa átt þar lengst sæti, dómstjórinn] 1) í Reykjavík og prófessorinn í stjórnskipunarrétti við Háskóla Íslands. Hæstiréttur kveður til varadómendur hæstaréttardómara úr hópi [annarra 2) hæstaréttardómara og síðan] 1) lagakennara háskólans, hæstaréttarlögmanna eða héraðsdómara, sem fullnægja skilyrðum til þess að vera skipaðir dómarar í hæstarétti. [Varamaður dómstjórans í Reykjavík er sá héraðsdómari í Reykjavík sem hefur lengst gegnt því embætti.] 1) Lagadeild háskólans kýs varamann prófessorsins í stjórnskipunarrétti;

b. átta menn kosnir af sameinuðu Alþingi með hlutfallskosningu til 6 ára í senn.“

Þingmannanefndin
» Þau sem skipa þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis eru: Atli Gíslason, formaður, Birgitta Jónsdóttir, Eygló Harðardóttir, Lilja Rafney Magnúsdóttir, Magnús Orri Schram, Oddný G. Harðardóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Unnur Brá Konráðsdóttir, varaformaður.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TOYOTA COROLLA H/B
Toyota Corolla H/B Sol, 01/2004, ekinn 84 þús. Ssk., vindskeið,...
BÆKUR ,TÍMARIT,MATREIÐSLUBÆKUR OG LP. PLÖTUR TIL SÖLU
https://bland.is/messageboard/messageboard.aspx?badvid=28470738&showAdvid=284707...
CANON EOS NÁMSKEIÐ - spennandi námskeið.
Kennum á CANON EOS vélar. Námskeið í hverjum mánuði. Í boði eru mislöng námskeið...
Sumarhúsasmíði Sveins.
Íslensk hágæða framleiðsla. Löggiltur húsasmíðameistari. Smíðum eftir þínum teik...
 
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....
Administrative assistant
Sérfræðistörf
Icelandic Institute for Intelligent Mac...
Samkoma
Félagsstarf
Samkoma, sunnudag kl. 17 Ken Lock...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...