Rúmlega 1.200 skjálftar í ágúst

Jarðskjálftar í ágúst stækka

Jarðskjálftar í ágúst Af vef Veðurstofu Íslands

Rúmlega 1200 jarðskjálftar voru staðsettir með mælakerfi Veðurstofunnar í ágúst. Stærsti skjálfti mánaðarins átti upptök við Bárðarbungu í vestanverðum Vatnajökli, 3,4 að stærð. Einnig mældust skjálftar stærri en þrír við Grímsey og á Reykjaneshrygg.

Nokkur virkni var á Reykjaneshrygg í mánuðinum. Smáhrina varð u.þ.b. 200 kílómetrum suðvestur af Reykjanestá að kvöldi laugardagsins 7. ágúst og var stærsti skjálftinn 3,1 stig. Þrjátíu skjálftar urðu við Kleifarvatn, stærsti um tvö stig. Um tugur smáskjálfta mældist við Krýsuvík. Nokkrir smáskjálftar mældust auk þess annars staðar á Reykjanesskaganum, samkvæmt frétt á vef Veðurstofunnar.

Rúmlega 50 smáskjálftar á Hengilssvæðinu

Rúmlega 50 smáskjálftar urðu á Hengilssvæðinu. Mesta virknin var við Húsmúla, vestur af Hellisheiðarvikjun, en þar mældust um 40 skjálftar, flestir í smáskjálftahrinu þann 9. ágúst. Um 40 smáskjálftar mældust í Hjallahverfi og við Raufarhólshelli og álíka margir á Kross-sprungunni. Ríflega 60 skjálftar mældust víðsvegar á Suðurlandsundirlendinu, allir um og innan við tvö stig. Rúmlega tugur smáskjálfta varð á Hestvatnssprungunni, flestir síðari hluta mánaðarins.

Í vestara gosbeltinu mældust á annan tug jarðskjálfta, flestir undir Geitlandsjökli. Þeir voru um einn að stærð.

Undir Eyjafjallajökli mældust 15 skjálftar, allir grunnir og innan við eitt stig að stærð. Flestir áttu upptök sín sunnan við toppgíg eldstöðvarinnar. Á annað hundrað skjálftar voru staðsettir undir Mýrdalsjökli, flestir í vesturjöklinum og voru þeir stærstu rúmlega tvö stig. Á Torfajökulssvæðinu mældust nokkrir jarðskjálftar, flestir vestast á svæðinu, norðan Laufafells. Stærsti skjálftinn var 2,6 stig.

Yfir 200 skjálftar undir vestanverðum Vatnajökli

Viðvarandi skjálftavirkni var undir vestanverðum Vatnajökli í mánuðinum, alls yfir 200, langmest norðaustan í Bárðarbungu. Þar varð skjálfti Ml 3,4 að stærð 19. ágúst en þann dag mældust flestir skjálftar á svæðinu eða tæplega 40. Nokkrir skjálftar mældust við Grímsvötn, Kverkfjöll og á Lokahrygg. Þann 12. ágúst mældust 11 skjálftar á Lokahrygg, sá stærsti Ml 2,6 stig.

Nokkur skjálftavirkni var við Öskju og Herðubreið. Viðvarandi virkni var við Hlaupfell og varð smáskjálftahrina á svæðinu þann 29. ágúst. Um 40 skjálftar mældust, flestir innan við einn að stærð. Á Kröflu- og Þeistareykjasvæðum mældust smáskjálftar af og til allan mánuðinn.

Yfir 300 jarðskjálftar mældust í Tjörnesbrotabeltinu, mest við Grímsey. Tvær litlar skjálftahrinur urðu við Grímsey, í fyrstu viku mánaðarins og seinustu. Í fyrri hrinunni mældust skjálftar 3,3 og 3,0 að stærð. Annars var skjálftavirkni norðan við land nokkuð dreifð í tíma og rúmi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
Mercedes Benz 500 SE árg 1990
Til sölu góður og vel með farinn Mercedes Benz 500 SE árg 1990 ekinn 239.000 Bíl...
Sumarhús 45-55m2
Óska eftir sumarhúsi á hvaða byggingastigi sem er til fluttnings. Myndir og upp...
Bókhaldsstofan ehf, Reykjavíkurv.60 Hfj.
Bókhald, launaútreikn., vsk-uppgjör, stofnun á félögum, ársreikningar, skattfram...
 
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
15096 nátthagi 9 ríkiskaup
Til sölu
Tilboð óskast í f...
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...