Starfsmönnum fækkar í háskólum
Starfsmönnum í skólum á háskólastigi hefur fækkað um 125 frá síðasta skólaári eða um 4,1%, og stöðugildum um 54 eða um 2,3%. Á sama tímabili fjölgaði nemendum í skólum á háskólastigi um 5,8%.
Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofunni, sem segir, að frá því að gagnasöfnun hófst fyrir áratug hafi stöðugildum starfsfólks í skólum á háskólastigi fjölgað ár frá ári þar til nú.
Starfsmenn í nóvember 2009 voru 2923 í 2285 stöðugildum. Í þessum tölum eru allir starfsmenn taldir, jafnt þeir sem sinna kennslu sem öðrum störfum.
Starfsmenn sem sinna kennslu voru 1950 í 1341 stöðugildum en í nóvember 2008 voru þeir 2039 í 1334 stöðugildum. Starfsmönnum við kennslu hefur því fækkað um 89, eða 4,4%, en stöðugildum starfsmanna við kennslu hins vegar fjölgað um sjö, eða um 0,5%, á tímabilinu.
Lektorum fækkar - prófessorum fjölgar
Rúmlega helmingur, eða 55,4% starfsfólks við kennslu, eru aðjúnktar og stundakennarar. Stöðugildi þessa hóps eru 520 af 1341 stöðugildi starfsmanna við kennslu eða 38,8%.
Frá fyrra ári hefur lektorum í hópi starfsmanna fækkað um 38 eða um 12,4% og aðjúnktum og stundakennurum um 113 eða um 9,2%. Á sama tíma hefur fjölgað um 15 í hópi prófessora (5,3%).
Þá hefur þeim starfsmönnum fækkað á milli ára sem vinna minna en 0,75 stöðugildi en þeim hefur fjölgað sem vinna 0,75-1,25 stöðugildi. Hagstofan segir líklegt, að í kjölfar samdráttar hafi lausráðnum starfsmönnum fækkað en fastráðið starfsfólk með lengri starfsaldur haldi stöðu sinni.
Prófessorar, dósentar og lektorar eru á bilinu 12-14% háskólakennara hver starfsstétt fyrir sig. Að meðtöldum aðjúnktum og stundakennurum eru stöðugildi allra þessara starfshópa við kennslu 93,9% stöðugilda við kennslu en 6,1% eru mönnuð af sérfræðingum, sérhæfðu starfsfólki og stjórnendum.
Þegar háskólakennarar eru taldir eftir starfsheiti og kyni má sjá að kynjamunur er mestur meðal prófessora. Karlar eru 75,4% prófessora en konur 24,6%. Í hópi dósenta eru karlar 64% og í hópi lektora eru karlar 50,6%. Meðal lausráðinna stundakennara og aðjúnkta eru konur fleiri eða 53,5% en karlar eru 46,5%.
Starfsmönnum háskóla sem eru sextugir og eldri fjölgaði um 19 frá nóvember 2008 en í öðrum aldursflokkum fækkaði. Ef aðeins er litið á starfsfólk við kennslu fjölgaði einnig í aldurshópi kennara undir þrítugu.
Starfsmenn
háskóla eru flestir á aldrinum 40-49 ára eða 803 í 630 stöðugildum. Næst
flestir eru á aldrinum 50-59 ára eða 787 í 660 stöðugildum. Samtals er
rúmur helmingur (54,4%) starfsmanna skóla á háskólastigi á aldrinum
40-59 ára.





































