10 erlendum ferðamönnum hjálpað

Hólmsá stækka

Hólmsá Rax / Ragnar Axelsson

Björgunarsveitirnar Stjarnan úr Skaftártungu og Björgunarsveitin Lífgjöf úr Álftaveri voru kallaðar út í dag þegar beiðni um aðstoð barst vegna bíls sem fastur var á leiðinni upp að Axarfossi á Mýrdalssandi, svonefndri Öldufellsleið. Bíllinn festist í Hólmsá en 10 erlendir ferðamenn sem í honum voru höfðu allir komist í land af sjálfsdáðum.

Mjög lélegt símasamband var við svæðið og litlar upplýsingar bárust frá ferðafólkinu og var talið að aðeins þyrfti að draga bílinn úr ánni. Einnig voru upplýsingar frá ferðafólkinu um staðsetningu þeirra misvísandi og því var ákveðið að senda björgunarsveitir að þeim úr tveimur áttum.
 
Þegar björgunarsveitirnar komu á staðinn voru ferðalangarnir orðnir kaldir og blautir eftir dvöl sína í rigningu á árbakkanum. Bíllinn, sem er bílaleigubíll, hafði flotið niður ánna og kerra sem hann dró var oltin. Mikið vatn var í ánni en mikið hefur rignt á svæðinu undanfarið.
 Björgunarsveitamenn fluttu fólkið til byggða og hressti það við með heitum drykkjum og húsaskjóli.
 
Ár á Suðurlandi eru vatnsmiklar um þessar mundir og vill Slysavarnafélagið Landsbjörg beina þeim tilmælum til ferðafólks á fjallvegum að leggja ekki í árnar nema það hafi góða þekkingu á vöðum og sé á vel útbúnum bílum. Ekki ætti að leggja í fjallaferðir einbíla. Lítil umferð er um fjallvegi og því ekki víst að aðstoð berist fljótt. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Börnin skemmtu sér hið besta við að búa til alls kyns byggingar úr kubbunum.

Börnin uppgötva undraheima Legó

14:05 Gríðarleg umferð hefur verið í ráðhúsi Reykjavíkurborgar um helgina en þar er sýningin Undraheimar Legó sett upp. Yngstu kynslóðinni gefst þar kostur til að gleyma sér framkvæmdum með fjölmarga Legó-kubba. Meira »
Fánar Evrópusambandsins fyrir utan höfuðstöðvar framkvæmdastjórnar sambandsins í Brussel.

Evrópusambandið kynnir sig sjálft

13:35 Sérstök upplýsingaskrifstofa um Evrópumál, sem fengið hefur heitið Evrópustofa, var opnuð við Suðurgötu í Reykjavík í síðasta mánuði en markmið hennar er að miðla hlutlægum upplýsingum til Íslendinga um Evrópusambandið og kosti og galla þess fyrir Ísland að ganga í sambandið. Meira »

SUF vill draga ESB-umsóknina til baka

13:34 Samþykkt var á 37. þingi Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) í morgun að aðildarviðræðum við Evrópusambandið yrði hætt og umsókn Íslands um aðild að sambandinu dregin til baka. Meira »

Enginn með einkarétt á Samstöðu

Lilja Mósesdóttir.
12:44 Lilja Mósesdóttir, formaður stjórnmálaflokksins Samstöðu, segir að átta félög hafi verið skráð í fyrirtækjaskrá undir nafninu Samstaða. Eitt af þeim var stjórnmálaafl á landsvísu sem breytti nafni sínu til að Samstaða Lilju gæti fengið nafn sitt. Meira »

Handteknir fyrir að keyra á mann

Ekið var á manninn í Austurstræti.
11:03 Tveir menn voru handteknir á heimili annars þeirra á sjötta tímanum í morgun vegna gruns um að annar hvor þeirra hefði ekið á mann í Austurstræti á fimmta tímanum. Mennirnir gista fangageymslur og verða yfirheyrðir þegar líður á daginn. Meira »

Vilja efla siðferði í stjórnmálum

Þingmenn Hreyfingarinnar standa að Breiðfylkingunni.
12:53 Stofnfundur Breiðfylkingarinnar hófst á hádegi en að henni standa Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin og einstaklingar úr stjórnlagaráði. Í kjarnastefnu fylkingarinnar segir að leysa verði skuldavanda heimilanna og efla siðferði í stjórnmálum. Meira »

Yrði ōðruvísi biskup myndskeið

biskupsframbod gunnar
11:45 MBL Sjónvarp ræðir á næstu vikum við frambjóðendur í biskupskjörinu sem fer fram á næstunni. Þannig gefst almenningi tækifæri á að kynnast þeim sem eru í framboði þó kosningaréttur sé ekki almennur. Séra Gunnar Sigurjónsson prestur í Digraneskirkju ríður á vaðið. Meira »

Lætur hátt í fangaklefa

10:51 Lögregla höfuðborgarsvæðisins var kölluð að samkvæmi við Smiðjustíg á sjöunda tímanum í morgun þar sem einn gestanna var með uppsteit. Að sögn lögreglu var maðurinn óviðráðanlegur af bræði og réðst hann á lögreglumenn sem hugðust vísa honum úr samkvæminu. Hann var handtekinn og er í fangaklefa, þar sem hann lætur hátt, að sögn lögreglu. Meira »

Martröð í matarboði myndskeið

Stuttmyndahornið: Martröð í matarboði
10:33 Myndin Takk fyrir mig er fimmta myndin sem MBL Sjónvarp sýnir í samvinnu við Kvikmyndaskóla Íslands. Myndin fjallar um matarboð sem virðist ætla að ganga vel þar til einn gestanna uppgötvar skuggahliðar gestgjafans. Meira »

Fjöruverðlaun eftir viku

Bækur níu kvenna eru tilnefndar til Fjöruverðlaunanna.
09:42 Misritað var í Morgunblaðinu í gær að Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, verði afhent í Iðnó í dag, en rétt er að það verður eftir viku, 18. febrúar næstkomandi, en þá verður haldin Góugleði í Iðnó. Gestur verðlaunahátíðarinnar verður rithöfundurinn og grínistinn Sandi Toksvig. Meira »

Leikstjórinn kom inn sem ljón

Skot úr sýningunni um Galdrakarlinn í Oz.
10:09 Leikarinn Halldór Gylfason var fluttur á slysadeild í gær þegar hann slasaðist við sýningu á Galdrakarlinum í Oz. Lúga opnaðist fyrir mistök á sviðinu þegar Halldór gekk um það og datt hann niður um hana. Tjaldið var snögglega dregið fyrir og varð úr að leikstjóri sýningarinnar kláraði sýninguna. Meira »

Enn skelfur við Grímsey

Skjálftar á landinu í morgun.
09:38 Töluverður fjöldi jarðskjálfta hefur mælst í nótt og fram á morgun við Grímsey. Sá stærsti sem mælst hefur var um tvö stig og voru flestir af svipuðum styrkleika. Meira »

Opið á skíðasvæðum

Fólk á skíðum.
09:26 Þó svo auð jörð sé í höfuðborginni er víða hægt að skíða í dag. Þannig fer fram Oddskarðssmót og þar verður keppt í svigi 9 til 12 ára. Opið verður í Oddsskarði frá klukkan 10 til kl. 16 og eru aðstæður býsna góðar. Einnig er opið á skíðassvæði Dalvíkur og á skíðasvæðinu í Tindastól. Meira »

Braut rúðu í lögreglubíl

08:40 Maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði í nótt eftir að hann braut rúðu í lögreglubíl.  Meira »

„Mjög sérstök tilfinning“

Jónsi og Greta Salóme.
Í gær, 23:12 „Mjög sérstök tilfinning,“ sagði Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, eftir að ljóst var að hann færi með Gretu Salóme til Bakú í Aserbaídjan til að keppa fyrir hönd Íslands í Evróvisjón. Jónsi sem tekur þátt í Evróvisjón í annað skipti sagðist ekki alveg hafa náð utan um þá staðreynd enn. Meira »

Fíkniefnasali handtekinn

08:44 Lögerglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt mann, sem var að selja fíkniefni við veitingahús í borginni en maðurinn var með fíkniefni í söluskömmtum innanklæða. Meira »

„Ég er í skýjunum“

Greta Salóme og Jónsi í kvöld.
Í gær, 23:35 „Ég er í skýjunum,“ sagði Greta Salóme Stefánsdóttir, texta- og lagahöfundur lagsins Mundu eftir mér sem verður framlag Íslands í Evróvisjónkeppninni í Aserbaídsjan í maí. Greta sagðist vilja þakka sínum nánustu og samstarfsfélögum, en nú ætlaði hún að njóta kvöldsins og leyfa því að líða. Meira »

Jónsi og Greta til Bakú

Jónsi og Greta í Hörpu.
Í gær, 22:29 Mundu eftir mér er framlag Íslands til Evróvisjón-keppninnar í Aserbaídsjan í maí. Íslenska framlagið keppir í fyrri hluta fyrri undanriðils þann 22. maí en aðalkeppnin fer fram 26. maí. Símakosning auk dómnefndar skar úr um hvaða lag var valið. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
16" Bens álfelgur til sölu. Ótrúlegt verð.
Líta út eins og nýjar. Voru notaðar bara á sumrin fyrir Bens E320 2007. Verð : ...
16" Bens álfelgur til sölu. Ótrúlegt verð.
Líta út eins og nýjar. Voru notaðar bara á sumrin fyrir Bens E320 2007. Verð : ...
Æðardúnssængur-tækfæri!
Nú getur þú eignast æðardúnssæng á verulega góðu verði. Stærð er 140x200 cm. og ...
Skimunarpróf fyrir ristilkrabbameini !!
Mottu Mars nálgast. Eftir hægðir setur þú eitt Ez Detect prófblað í salernið....
 
Landsst.
Félagsstarf
Landsst. 6012020919 VII...
Viðtöl vegna úttektar á or 01420
Tilkynningar
TILKYNNING Úttektarnefnd Orkuveitu Re...
Stúkan hekla
Félagsstarf
mHekla 6012020619 IV/ V...
Aðalfundur sálarrannsóknafélags íslands
Félagsstarf
Sálarrannsóknarfélag Íslands, stofn...