Breytingar hjá strætó
Nú stendur yfir endurnýjun á upplýsingakerfum allra strætisvagna Strætó bs. Kerfið mun auka upplýsingagjöf til farþega, hjálpa vagnstjórum að halda áætlun og veita stjórnstöð rauntímaupplýsingar um stöðu vagna í akstri. Að auki er stefnt að því að gera kerfið þannig úr garði að það geti tekið við greiðslum með greiðslukorti, samkvæmt fréttatilkynningu.
Grunnbúnaður kerfisins er nú þegar kominn í u.þ.b. 40 strætisvagna og verður allur flotinn kominn með nýja kerfið á næstu vikum. Sumir farþegar hafa þegar orðið varir við fyrstu breytingarnar sem nýja kerfið hefur í för með sér, en þær felast í að nafn næstu biðstöðvar er sjálfkrafa kynnt í hátalarakerfi vagnsins.
Fljótlega munu bætast við upplýsingaskjáir í vögnunum sem veita farþegum upplýsingar um næstu biðstöðvar, birta tilkynningar og fleira.
Meginvirkni nýja kerfisins byggir á að allir vagnar eru útbúnir GPS-staðsetningartæki sem sendir upplýsingar um staðsetningu vagnsins, hraða og akstursstefnu beint til stjórnstöðvar. Allir strætisvagnar eru samstilltir við gervihnattaklukku og vagnstjórar fá stöðugt upplýsingar um hvenær vagninn eigi að vera á næstu biðstöð.
Nýja upplýsingakerfið veitir jafnframt grunn fyrir enn frekari þjónustuaukningu þegar horft er lengra fram í tímann, samkvæmt fréttatilkynningu.
„Til að mynda mun verða hægt að birta upplýsingar á skjám biðstöðva um hve langt sé í næstu vagna auk þess sem farþegar munu geta sótt slíkar upplýsingar á vefinn, t.d. með tölvum eða farsímum. Jafnframt er verið að þróa lausnir sem gera kleift að nýta kerfið til að taka við greiðslum fyrir stakar ferðir með greiðslukortum," segir í fréttatilkynningu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. september 2010, Innlent Nafn næstu biðstöðvar tilkynnt í hátalara
- Miðvikudagur, 8. júní 2011, Innlent Tvinnvagnar álitlegur kostur
- Sunnudagur, 7. febrúar 2010, Innlent Spara með íslensku hugviti
- Föstudagur, 25. febrúar 2011, Innlent Strætó hættir akstri fyrr á kvöldin
- Þriðjudagur, 17. ágúst 2010, Innlent Borgarbúar noti Strætó
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































