Skoskir sjómenn ráða ráðum sínum
Þorski landað í höfninni í Peterhead í Skotlandi. mbl.is
Skoskir sjómenn ætla að halda fjöldafund í næstu viku og leggja þar á ráðin um næstu skref í makrílstríðinu svonefnda við Íslendinga og Færeyinga. Blaðið Scotsman segir frá þessu í dag. Í ágúst komu skoskir sjómenn í veg fyrir að makríl væri landað úr tveimur færeyskum skipum í Peterhead.
Scotsman segir, að fundurinn verði haldinn á mánudag í Fraserburgh og munu forustumenn skoska úthafsveiðisambandsins og skoska sjómannasambandsins ávarpa fundinn.
Blaðið hefur eftir Ian Gatt, formanni úthafsveiðisambandsins, að mikilvægt sé að lausn finnist á deilunni hið fyrsta. Hins vegar sé ljóst, að skoskir sjómenn sætti sig ekki við niðurstöðu, sem gangi gegn þeirra hagsmunum. Þá verði að samkomulagið einnig að tryggja að veiðar úr makrílstofninum séu sjálfbærar.
Blaðið hefur eftir Richard Lochhead, sjávarútvegsráðherra skosku heimastjórnarinnar, að nauðsynlegt sé að finna lausn á deilunni. Sagði hann, að skoskir embættismenn ættu nú í viðræðum við Færeyinga með það að markmiði að fá þá til að endurskoða veiðikvóta sem þeir gáfu út. Aðildarríki Evrópusambandsins komi einnig að þeim viðræðum. Þá segir hann, að búist sé við að viðræður haldi áfram við Íslendinga síðar í september.
„En það er ástæða til að hafa áhyggjur af einstrengingslegri afstöðu Íslands. Með því að reyna að réttlæta einhliða aðgerðir sínar hafa Íslendingar aðeins undirstrikað að þeir vilja ekki ná raunhæfri málamiðlun," hefur blaðið eftir ráðherranum.
Skoskir sjómenn eru æfir yfir því, að Færeyingar ákváðu að gefa út allt að 85 þúsund tonna makrílkvóta fyrir færeysk skip og Íslendingar allt að 130 þúsund tonna kvóta fyrir íslensk skip.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 25. september 2010, Innlent ESB hleypi Íslendingum ekki inn í lögsöguna
- Miðvikudagur, 25. ágúst 2010, Innlent ESB gagnrýnir makrílveiðarnar
- Föstudagur, 10. september 2010, Innlent Sögð geta hindrað ESB-aðild
- Sunnudagur, 3. október 2010, Innlent „Íslendingar eru ekki þorparar“
- Þriðjudagur, 15. mars 2011, Innlent Bregðast ókvæða við færeyskum makrílkvóta
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































