Þrengt meira að almannaþjónustu
Í nýrri launakönnun SFR stéttarfélags í almannaþjónustu kemur fram að launabilið á milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði í sambærilegum starfsgreinum hafi aukist á milli ára og sé nú 18%, almenna vinnumarkaðnum í vil.
SFR hefur nú fjórða árið í röð, í samstarfi við VR, fengið Capacent Gallup til að vinna launakönnun fyrir félagið.
Í tilkynningu frá SFR segir að niðurstöður könnunarinnar sýni að launamunur á milli starfsmanna í almannaþjónustu og starfsmanna á almennum vinnumarkaði hafi aukist milli ára. Þegar tekið hafi verið tillit til kyns, aldurs, starfsstéttar, starfsaldurs, vinnutíma, vaktaálags og menntunar, sé munurinn á heildarlaunum félagsmanna SFR og VR 18%, VR félögum í vil.
Í könnun sem var gerð í fyrra var munurinn 15% og 20% árið þar á undan.
Heildarlaun VR félagsmanna hækkuðu að meðaltali um 4,6% á síðasta ári sem er umtalsvert meira en hjá SFR þar sem heildarlaun hækkuðu einungis um 1,6%. Meðaltal heildarlauna SFR félaga voru 325.035 krónur fyrir fullt starf í febrúar 2010 en 422.027 krónur hjá VR, mismunurinn er um 100 þúsund krónur per mánuð. Inn í þessar tölur er búið að reikna þær hækkanir sem samið var um á árinu 2009 og metnar voru 2,7% launahækkun hjá VR og 1% hækkun hjá SFR.
Af tölunum má sjá að enn er þrengt mun meira að starfsmönnum í almannaþjónustunni en þeim sem starfa á almennum vinnumarkaði.
Í tilkynningu SFR segir að launaskrið hafi orðið hjá þeim síðarnefndu en ekki hjá starfsmönnum almannaþjónustunnar. Almenni vinnumarkaðurinn virðist miðað við þessar tölur vera að rétta hraðar úr kútnum eftir efnahagshrunið en sá opinberi, en starfsmenn í almannaþjónustunni sitja eftir í launaþróuninni.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Þrengt meira að almannaþjónustu/þetta er þvi miður vanin,að þrengja í ... -
Ólafur Ragnarsson "hvernig á "ekki" að stjórna"
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 20. september 2011, Innlent Illa gengur að brúa bilið
- Þriðjudagur, 15. september 2009, Innlent Lægstu launin hafa hækkað meira
- Föstudagur, 13. maí 2011, Innlent Sérstakur saksóknari stofnun ársins
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent Félagsmenn njóti sömu réttinda og aðrir
- Fimmtudagur, 16. júní 2011, Innlent Á þriðja tug mála til sáttasemjara
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































