Hvers konar klúbbur er þetta?
Ólafur Ragnar Grímsson hitti meðal annars Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, að máli í Tianjin í gær og gaf honum bók um Eyjafjallajökul.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir í viðtali við Bloomberg fréttastofuna, að deilur Íslendinga við Breta og Hollendinga um Icesave veki upp spurningar um aðildarumsókn Íslendinga að Evrópusambandinu.
„Aðgerðir Breta og Hollendinga, sem nutu lengi stuðnings Evrópusambandsins, hafa vakið upp spurningar í hugum margra Íslendinga: Hvers konar klúbbur er þetta eiginlega?" hefur Bloomberg eftir Ólafi Ragnari.
Viðtalið var tekið í Tianjin í Kína þar sem Ólafur Ragnar situr fund Alþjóðaefnahagsráðsins.
Ólafur segir í viðtalinu að Íslendingar séu reiðubúnir til að ræða um endurgreiðslu á Icesave-ábyrgðum. Hins vegar verði bresk og hollensk stjórnvöld að gera sér grein fyrir því, að Landsbankinn og netbankinn Icesave hafi ekki notið ríkisábyrgðar.
„Enginn getur haldið því fram, að íslenska þjóðin eða pólitíska lýðræðislega kerfið á Íslandi hafi ekki brugðist með ábyrgum hætti við fjármálakreppunni. Það þýðir þó ekki, að við ættum að láta undan svívirðilegum kröfum Breta og Hollendinga," hefur Bloomberg eftir Ólafi.
Bloggað um fréttina
-
Emil Örn Kristjánsson Eins og talað út úr mínu hjarta -
Magnús Sigurðsson Þessi klúbbur minnir á hænsnabú. -
Haraldur Haraldsson Hvers konar klúbbur er þetta?/Vel sagt hjá Forseta vorum!!!!!!! -
-
Sigurður Jónsson Ólafur Ragnar og Davíð syngja sama lagið. -
Hreinn Sigurðsson Viðbjargandi. -
Benedikta E Heyr forseta vorum - sómi lands og skjöldur! -
Skúli Guðbjarnarson Gott mál -
Njörður Helgason Shut up and go home -
Stefán Friðrik Stefánsson Forsetinn tekur slaginn við ESB-valdið -
Heimir L Fjeldsted Samviska þjóðarinnar -
Sigurður Þórðarson Flottasti forsetinn: "Hverskonar klúbbur er þetta eiginlega?" -
Valdimar Samúelsson Við þurfum að virkja Forseta Íslands Í baráttunni gegn ESB. ... -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Góð spurning... -
Óðinn Þórisson Hr. Ólafur Ragnar Grímsson -
Gregg Thomas Batson Icelandic Hero -
-
Sigurður Sigurðsson Klúbburinn!!!! -
Sigríður Sigurðardóttir Hrærigrauts-klúbburinn hinn síðari.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Innlent Talaði fyrir hagsmunum þjóðarinnar
- Miðvikudagur, 17. nóvember 2010, Innlent Lausn jákvæð fyrir lánshæfismat
- Mánudagur, 20. desember 2010, Innlent Forsetinn tjáir sig um Icesave í Abu Dhabi
- Laugardagur, 6. mars 2010, Innlent Gordon Brown sýni stjórnvisku
- Föstudagur, 26. nóvember 2010, Innlent Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































