Kennarar taka ekki „uppskrift" SA og ASÍ
Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands. mbl.is
Einhugur ríkir í Kennarasambandi Íslands um áherslur í komandi kjarasamningum að sögn Eiríks Jónssonar, formanns sambandsins. Sóttar verði kjarabætur sem skili sér til allra, ekki bara þeirra lægst launuðu, réttindi félagsmanna varin og þess krafist að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga verði virtur. Þetta kemur fram í viðtali við Eirík í Skólavörðunni.
Eiríkur bendir á í viðtalinu að nú sé verið að lengja kennaramenntun svo lengri tíma taki en áður að afla sér kennsluréttinda. Þetta sé grundvallaratriði og verði að meta til launa. „Kennarasambandið mun krefjast þess að kjarabætur í komandi kjarasamningum verði raunverulegar og að þær skili sér til allra félagsmanna en ekki einungis til þeirra sem lægst hafa launin," segir Eiríkur. KÍ hafi alla tíð stutt hækkun lægstu launa og geri enn, en nú sé nauðsynlegt að hækkanir nái líka til þeirra sem ofar eru.
Þá segir Eiríkur að félög innan KÍ muni örugglega ekki taka því í þetta skiptið að fá upp í hendurnar „uppskrift af kjarasamningum sem samin er af SA og ASÍ" eins og raunin var síðast. „Það er ekkert sem mælir gegn því að aðilar hafi með sér samstarf við gerð kjarasamninga í haust, en forsendur þess verða að vera þær að sjálfstæður samningsréttur stéttarfélaga sé virtur að fullu."
Eiríkur segir öllum ljóst að að SA og ASÍ hafa
á köflum farið hamförum gegn lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna. Frekari skerðing
á lífeyrisréttindum félagsmanna KÍ komi ekki til greina enda um
kjarasamningsbundin réttindi að ræða. Viðtalið við Eirík má lesa í heild á heimasíðu Kennarasambandsins.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Eina verkalýðsfélagið á Íslandi sem hefur þorað að fara í ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Leiðrétta verður það sem aflaga hefur farið
- Mánudagur, 6. desember 2010, Innlent Kennarar ekki með í samfloti
- Fimmtudagur, 6. janúar 2011, Innlent Vilja að umsamdar hækkanir nái til allra
- Föstudagur, 8. apríl 2011, Innlent Þórður tekur við af Eiríki
- Mánudagur, 7. mars 2011, Innlent Vaxandi óróleiki vegna hægagangs
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































