Hundur beit dreng

Hundur beit dreng í fótinn í Mosfellsbæ í gærmorgun. Var pilturinn á leið í skólann þegar þetta gerðist. Lögreglan segir, að drengurinn hafi ekki meiðst alvarlega. Ekki er ljóst hvað verður um hundinn.

Ekið var á 11 ára stúlku á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði síðdegis í gær. Hún var flutt á slysadeild til skoðunar. Að sögn lögreglu reyndist stúlkan óbrotin en muni hafa fengið heilahristing.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert