Forsendur til að taka kröftuglega á skuldamálum
Landsbankinn segir, að með dómi Hæstaréttar og viðbrögðum efnahags- og viðskiptaráðherra við honum séu stigin stór skref til að eyða þeirri óvissu sem uppi hafi verið. Nú séu allar forsendur til að taka kröftuglega á skuldamálum bæði fyrirtækja og einstaklinga og muni bankinn leggja sitt af mörkum í þá veru.
Landsbankinn hefur þegar sett á stofn ráðgjafasetur fyrir skuldsett heimili og aukin þjónusta fyrir þau verður kynnt á næstunni. Þá stendur til að setja á stofn sérstakt svið innan Landsbankans sem mun eingöngu sinna málum er lúta að endurskipulagningu skulda fyrirtækja. Landsbankinn mun einnig á næstu dögum kynna breytingar á eldri úrræðum fyrir skuldsett fyrirtæki sem munu einfalda og hraða allri meðferð þeirra mála.
Landsbankinn hefur ákveðið að allir einstaklingar í hópi viðskiptavina bankans sem eru með erlend fasteignalán geti óskað eftir endurútreikningi þeirra. Þetta verður þó ekki í boði fyrr en endurútreikningi gengistryggðra lána er lokið.
Endurútreikningur lána mun taka töluverðan tíma og ekki er ljóst hvenær honum lýkur, að sögn bankans, þótt honum verði hraðað. Á meðan býðst viðskiptavinum að greiða 5000 krónur af hverri milljón upprunalegs höfuðstóls fasteignalána. Þá geta þeir greitt af lánunum miðað við skilmála þeirra kjósi þeir það frekar.
Landsbankinn mun reikna lánin miðað við verðtryggða og óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands. Viðskiptavinir geta svo valið þá leið sem þeim er hagfelldari. Kjósi þeir að bera endurútreikning bankans undir þriðja aðila er það að sjálfsögðu heimilt.
Þegar endurreikningi er lokið mun Landsbankinn bjóða viðskiptavinum nýjan samning um eftirstöðvar láns þeirra. Kjósi viðskiptavinir að hafa lán sín í erlendri mynt verður þeim það heimilt.
Bankinn segir, að dómur Hæstaréttar nú leiði ekki til þess að hluthafar
bankans þurfi að leggja Landsbankanum til nýtt eigið fé enda séu áhrif
af þessum dómi óveruleg. Á hinn bóginn hafi dómar Hæstaréttar í
þessum málum nokkur áhrif á SP- Fjármögnun hf., dótturfélag bankans.
Landsbankinn muni hins vegar styðja SP- Fjármögnun hf. þannig að staða
viðskiptavina fyrirtækisins verði trygg.
|
|
Tilkynning Landsbankans |
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Haraldsson Já var það ekki! -
Þórdís Björk Sigurþórsdóttir Ríkisfyrirtækið SP fjármögnun
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 16. júní 2010, Innlent Ekki ljóst hvernig eigi að reikna á lánin
- Föstudagur, 25. júní 2010, Innlent Fleiri senda út óbreytta seðla
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Miðvikudagur, 23. febrúar 2011, Innlent Myndi rýra eignastöðu bankans um 16 milljarða
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Innlent Óveruleg áhrif á Arion banka
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































