Mótmæla því að þurfa að skipta um stéttarfélag
Trúnaðarmannaráð SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu mótmælir þeirri kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag við yfirfærslu málaflokksins frá ríki til sveitarfélaganna. Þetta var samþykkt á fundi trúnaðarmannaráðsins, samkvæmt fréttatilkynningu frá stéttarfélaginu.
„Það er sjálfsagður réttur starfsmanna að halda stéttarfélagsaðild sinni. Lagabreyting hefur áður verið gerð til að tryggja réttindi starfsfólks við yfirfærslu málaflokka milli ríkis og sveitarfélaga. Þegar yfirfærsla heilbrigðisstofnana frá sveitarfélögum til ríkis átti sér stað árið 1989-90, fengu starfsmenn að velja hvort þeir héldu aðild sinni að þáverandi stéttarfélagi eða flyttu sig.
Lagabreytingu þarf til en réttindi fólks eru í húfi, því án hennar er einfaldlega verið að iðka gamaldags vinnubrögð með því að flytja fólk nauðungarflutningum milli félaga. Mikil óvissa ríkir um starfsöryggi félagsmanna SFR innan málaflokksins, yfirfærslan á að fara fram nú um áramótin og enn hefur ekki náðst samkomulag á milli samningsaðila. Skýr vilji meirihluta félagsmanna SFR liggur þegar fyrir en þeir vilja vera áfram félagar í SFR.
Trúnaðarmannaráð SFR krefst þess að ríkið taki ábyrgð á að tryggja réttindi og kjör liðlega 1200 félagsmanna SFR innan málaflokksins með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. Fundurinn telur það einnig vera eðlilega kröfu að samsvarandi breyting verði nú gerð á samningsréttarlögunum og gerð var 1990 og að starfsmenn við málefni fatlaðra geti átt áframhaldandi aðild að SFR, þrátt fyrir yfirfærslu málaflokksins, og að nýir starfsmenn geti valið sér stéttarfélag," segir í tilkynningu sem send er á fjölmiðla.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 21. september 2010, Innlent Félagsmenn njóti sömu réttinda og aðrir
- Fimmtudagur, 7. október 2010, Innlent Mikill hiti í stuðningsfulltrúum og félagsliðum
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Innlent Segja óvissu ríkja um starfsöryggi
- Föstudagur, 12. nóvember 2010, Innlent Sveitarfélögin verða að semja við SFR
- Mánudagur, 13. september 2010, Innlent Þrengt meira að almannaþjónustu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































