Óheimilt að nota fjölfosfat
Matvælastofnun telur óheimilt að nota fjölfosfat við saltfiskvinnslu. Stofnunin hefur hins vegar ákveðið að hinkra eftir niðurstöðu sérfræðinganefndar Evrópusambandsins sem fjallar um ósk framleiðenda efnanna um að heimila þau.
Fiskverkun Karls Sveinssonar á Borgarfirði eystra hefur ekki viljað nota þessi efni og telur sig verða fyrir miklu fjárhagstjóni vegna þess að Matvælastofnun framfylgir ekki banni við notkun þeirra. Fyrirtækið hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu og hyggst óska eftir opinberri rannsókn á starfsháttum starfsmanna Matvælastofnunar.
Sigurður Örn Hansson, forstöðumaður matvælaöryggis- og neytendamálasviðs Matvælastofnunar, segir vitað að fjölfosfat sé notað í einhverju mæli við saltfiskvinnslu hér á landi. Efnið gerir fiskinn hvítari. Hann segir að gerð hafi verið athugasemd við það, bæði almennt með tilkynningum á heimasíðum Fiskistofu og Matvælastofnunar, og við einstök fyrirtæki.
„Það er deila um það hvort þetta sé aukefni eða tæknilegt hjálparefni. Við túlkum reglurnar þannig að þetta sé aukefni. Þá er óheimilt að nota það í saltfiski samkvæmt reglugerð um aukefni,“ segir Sigurður Örn.
Hann segir að efnið sé notað í nágrannalöndunum og Matvælastofnun hafi verið í sambandi við systurstofnanir sínar um viðbrögð, síðast á fundi í febrúar sl. „Þar kom fram að ekki hefur verið gripið til strangari aðgerða vegna notkunar á þessum efnum, meðal annars vegna þess að framleiðandi efnisins hefur sótt um það til Evrópusambandsins að aukefnareglugerðinni verði breytt þannig að notkun þess verði heimil í saltfiskframleiðslu,“ segir Sigurður Örn.
Matvælastofnun hafi í þessu ljósi ákveðið að bíða með frekari aðgerðir eftir niðurstöðu sérfræðinganefndar ESB sem metur það hvort heimilt verði að breyta reglugerðinni eða ekki. „Sérfræðinganefndin hefur ekki lokið störfum og hefur óskað eftir frekari gögnum frá framleiðanda, eftir því sem við höfum frétt,“ segir Sigurður.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 19. september 2010, Innlent Hættulegt fyrir orðspor okkar
- Föstudagur, 1. apríl 2011, Innlent Markaðssetning búfjárafurða ekki viðunandi
- Þriðjudagur, 1. febrúar 2011, Innlent Vildu fá að selja salmonellusmitaðan kjúkling
- Mánudagur, 29. nóvember 2010, Innlent 9 kúabændur kærðir til lögreglu
- Föstudagur, 29. júlí 2011, Innlent Inniheldur hættulegt efni
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































