„Jón blessunarlega laus við fordóma"

Jón Hilmar Hallgrímsson á leið í gæsluvarðhald stækka

Jón Hilmar Hallgrímsson á leið í gæsluvarðhald

Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Jóns Hilmars Hallgrímssonar, sem sat í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn lögreglu á árásum á kúbverska feðga í Reykjavík, segir Jón Hilmar blessunarlega lausan við fordóma í garð fólks af öðrum kynþætti eða þjóðerni og það síðasta sem hann myndi gera væri að kynda undir kynþáttaofsóknum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í athugasemd sem Sveinn Andri hefur sent frá sér vegna umfjöllunar fjölmiðla um málið. Segir Sveinn Andri að ungur frændi Jóns Hilmars hafi verið í hópi ungmenna í Menntaskólanum í Kópavogi sem stóð stuggur af þeim hópi ungmenna sem tók sér stöðu með kúbverska drengnum. Jón hafi haft símasamband við umræddan kúbverska pilt, að sögn Sveins Andra, til þess að freista þess að róa málin.

Líkt og fram kom í frétt mbl.is á mánudag er Jón Hilmar er grunaður um að hafa hótað feðgum af kúbverskum uppruna lífláti og valdið eignaspjöllum á heimili þeirra.  Hann hefur komið við sögu lögreglunnar, meðal annars vegna ásakana um svonefndar handrukkanir.

Feðgarnir fóru úr landi á sunnudag vegna málsins en skemmdarverk voru framin á heimili þeirra á laugardag og þeim hótað lífláti. Báðir eru þeir íslenskir ríkisborgarar, en kveikja málsins virðist vera sú að pilturinn hefur átt vingott við íslenska stúlku.

Fram hefur komið, að samband ungmennanna hafi vakið upp annarleg viðhorf og kynþáttafordóma,  meðal annars í Menntaskólanum í Kópavogi þar sem stúlkan stundar nám.

Yfirlýsing Sveins Andra Sveinssonar í heild:

„Í tilefni af fjölmiðlaumfjöllun undanfarinna daga sér undirritaður f.h. Jóns Hilmars Hallgrímssonar sig tilneyddan til þess að koma að athugasemdum vegna sérlega óvandaðs fréttaflutnings í fjölmiðlum í tilefni af meintum kynþáttaofsóknum gegn Íslendingum af kúbverskum uppruna.

Tildrög málsins eru erjur milli hópa ungmenna í Menntaskólanum í Kópavogi. Ungur frændi Jóns Hilmars var í öðrum hópnum og hafði samband við Jón þar sem honum stóð stuggur af þeim hópi ungmenna sem tekið hafði sér stöðu með hinum kúbverska dreng.

Jón hafði símasamband við umræddan kúbverskan pilt til þess að freista þess að róa málin en hafði ekki erindi sem erfiði.

Í fjölmiðlum hefur tveimur staðhæfingum verið slegið fram sem staðreyndum; annars vegar að umbj. minn hafi ráðist inn á heimili hinnar kúbversku fjölskyldu og framið þar eignaspjöll og hins vegar að hann hafi haft í hótunum við piltinn kúbverska.

Í tvö skipti voru framin eignaspjöll; í fyrra skiptið var á ferðinni hópur unglinga með golfkylfur og fleiri áhöld og brutu rúður í húsinu. Í síðara skiptið var útihurð brotin upp með slökkviliðstæki. Fyrir liggur að umbj. minn var hvorugt skiptið nálægt umræddu húsi og ljóst að umræddir aðilar voru ekki á vegum Jóns eða að gera eitthvað að hans beiðni.

Jón Hilmar hefur aldrei haft í hótunum við hina kúbversku fjölskyldu, hvorki fyrr né síðar. Þvert á móti reyndi hann að stilla til friðar en uppskar aðeins hótanir og svívirðingar.

Jón er blessunarlega laus við fordóma í garð fólks af öðrum kynþætti eða þjóðerni og það síðasta sem hann myndi gera væri að kynda undir kynþáttaofsóknum."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til leigu
Til leigu í sumar 3 herbergja íbúð í Grafarvogi. 8940458...
TILBOÐ Á DEKKJUM
Tilboð á dekkjum 155 R 12 kr. 6.900. 135 R 13 kr. 5900. 165 R 13 kr. ...
Sportkerra
Sportkerrur fyrir börn, heildsöluverð, lagersala. www.hjolavagnar.is...
HANNA OG SMÍÐA STIGAFÁST Á ÝMSUM BYGGING
Hanna og smíða stiga Fást á ýmsum byggingarstigu...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
Sýslumaðurinn á Selfossi Hörðuvöllum 1,...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Tækniskólinn - atvinnuauglýsing
Önnur störf
Framúrskarandi kennarar óskast í ...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...