Umræða um ákærur að hefjast
Umræða er að hefjast á Alþingi um þingsályktunartillögur, sem gera ráð fyrir því að mál verði höfðað fyrir landsdómi á hendur fjórum fyrrverandi ráðherrum vegna saknæmrar vanrækslu á embættisskyldum sínum. Krafa kom fram á Alþingi að þingmenn fái aðgang að öllum gögnum þingmannanefndarinnar.
Um er að ræða tvær tillögur, önnur frá meirihluta þingmannanefndar, sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, en samkvæmt henni verður höfðað mál á hendur fjórum fyrrum ráðherrum. Hin tillagan er frá fulltrúum Samfylkingarinnar í nefndinni um að höfðað verði mál á hendur þremur fyrrum ráðherrum.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sagði í upphafi fundar að hún hafi óskað eftir því að mælt yrði fyrir tillögunum sameiginlega en andmæli komu fram við því.
Áður en umræðan hófst fór fram löng umræða um fundarstjórn forseta í kjölfar þess að Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, krafðist þess að þingmenn fengju aðgang að öllum gögnum og minnispunktum, sem þingmannanefndin hefði haft undir höndum og notað þegar tillögurnar um málshöfðun á hendur ráðherrum voru samdar.
Ýmsir urðu til að taka undir þessa kröfu, þar á meðal Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, og fleiri þingmenn Samfylkingarinnar.
Atli Gíslason, formaður þingmannanefndarinnar, sagði hins vegar að þingmannanefndin hefði m.a. sett sér verklagsreglur, þar sem segði að gögn sem varðar ráðherraábyrgð sé bundin trúnaði. Meðal annars hefði verið kallað eftir gögnum frá sérfræðingum og að minnsta kosti tveir þeirra hefðu ekki samþykkt að vinnugögn þeirra yrðu lögð fram opinberlega.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði óþolandi að hópur þingmanna hefði upplýsingaforskot á aðra þingmenn. „Ég mun ekki sætta mig við það," sagði hann.
Magnús Orri Schram, sem situr í þingmannanefndinni fyrir hönd Samfylkingarinnar, sagði að enginn vilji væri fyrir því í nefndinni að halda gögnum fyrir öðrum þingmönnum.
Ólöf Nordal sagði að þingmannanefndin gæti ekki skýlt sér á bak við verkfallsreglur. Meirihluti þingmanna væri eindregið þeirrar skoðunar að birta eigi gögnin og ekki sé hægt að hefja umræðuna án þess að gögnin lægju fyrir.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir upplýsti að þingmannanefndin muni halda fund í hádeginu og einnig muni forseti og þingflokksformenn þingsins ræða málið á fundi.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Leynilegar ákærur - nýtt þinghneyksli? -
Halldór Halldórsson Spark- og friðþægingarkeppnin hafin. -
Ómar Geirsson Verða andlit ákærenda hulin???
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent Umræðu frestað til mánudags
- Miðvikudagur, 22. september 2010, Innlent Vísað til þingmannanefndar
- Miðvikudagur, 29. september 2010, Innlent Samfylking réð úrslitum
- Mánudagur, 13. september 2010, Innlent Ólga og hörð viðbrögð
- Föstudagur, 17. september 2010, Innlent Trúnaði aflétt að hluta
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































