Sveitarfélag kom af fjöllum

Grundartangi. stækka

Grundartangi. mats.is

Stjórnvöld höfðu ekkert samráð við Hvalfjarðarsveit vegna undirbúningsvinnu við hugsanlega stórverksmiðju á sviði eldsneytisframleiðslu á Grundartanga. Einar Örn Thorlacius, fyrrverandi sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar, harmar þessi vinnubrögð.

Eins og Morgunblaðið greindi frá á laugardag staðfestir Ichiro Fukue, aðstoðarforstjóri Mitsubishi Heavy Industry, móðurfélags Mitsubishi, að undirbúningur að eldsneytisverksmiðju á Grundartanga hafi staðið yfir síðan 2008 og að hann sé nú langt kominn.

Framkvæmdir eru taldar kosta 58 milljarða króna en verksmiðjan á að framleiða DME, lyktarlaust gas sem nota má í staðinn fyrir díselolíu á fiskiskipaflotann.

Létu ekki vita af heræfingu 

Því er um stórframkvæmd að ræða og undrast Einar Örn að sveitarfélagið sé fyrst að hafa veður af þessum hugmyndum nú, um tveimur árum eftir að undirbúningsferlið hófst. 

„Sem gamall sveitarstjóri er ég þeirrar skoðunar að menn eiga ekki að gleyma að ræða við sveitarfélögin sjálf. Sannleikurinn er líka sá að sveitarfélögin eru komin með heimasíðu og íbúarnir fylgjast þar vel með fréttum úr sveitarfélaginu. Netið er orðin mikilvæg upplýsingasveita hjá sveitarfélögum, sérstaklega smærri sveitarfélögum. Þessar síður eru mikið lesnar. 

Í því ljósi er svolítið kjánalegt að lesa um hluti í fjölmiðlum sem væri bæði kurteislegra og skemmtilegra að kynna fyrir íbúunum, að ég tala nú ekki fyrir sveitarstjórnarmönnum fyrst.

Þegar ég var sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar voru skipulagðar heræfingar á vegum Atlantshafsbandalagsins og Landhelgisgæslunnar í Hvalfirði. Þá var ekki einu sinni sent bréf til sveitarstjórnar og hún látin vita af þessu heldur las fólk um þetta í fjölmiðlum.“

Vitnisburður um gæði hafnarinnar

Einar Örn telur áhuga Mitsubishi til marks um hversu góð hafnaraðstaðan við Grundartanga er.

„Það sannast enn einu sinni á áhuga Mitsubishi. Forsvarsmenn fyrirtækisins líta til aðstæðna á Grundartanga sem eru í einu orði sagt frábærar. Aðstaðan við Grundartangahöfn laðar greinilega að fyrirtæki víðsvegar að úr heiminum. Grundartangi státar af nálægð við höfuðborgarsvæðið og frábærri höfn.

Til skamms tíma voru aðeins tvö stóriðjuver á Grundartanga. Nú er hins vegar verið að úthluta lóðum til atvinnufyrirækja svo ekki sé minnst á þetta verkefni sem kann að bætast við. Nú þegar vinna mörg hundruð manns á Grundartanga eða á að giska 600 til 700 manns allan sólarhringinn, allt árið. Það stefnir í að verða mikið meira og það er hið besta mál,“ segir Einar Örn en áætlað er að verksmiðjan skapi 150 til 250 störf.

Einar Örn Thorlacius.

Einar Örn Thorlacius.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR FATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin.is/...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR. Bókhald og rekstrarráðgjöf. Sími 77 50 200 og 519 7585. www.be...
TEXASBORGARAR
Heimagerðir hamborgarar og franskar úr 100% gæðahráe...
FORD TAURUR bSES 2002
Ford Taurus SES árg 2002 ekinn 87.000 mílur sumardekk + vetrar sami eigandi í 9á...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...