Dæmdur fyrir að stela rotþró
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá árið 2008 eign sinni á rotþró, sem stóð utan við sumarhús í Grímsnesi, og sett hana niður við sitt eigið sumarhús.
Maðurinn var einnig sakfelldur fyrir að falsa kvittun til að reyna bera af sér sakir.
Þetta er í annað skipti, sem málið kemur til kasta héraðsdóms í mars sl. en þá var maðurinn einnig dæmdur í 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hæstiréttur ómerkti hins vegar dóminn og vísaði málinu heim í hérað að nýju.
Eigandi sumarhúss í Grímsnesi tók eftir því
sumardaginn fyrsta árið 2008 að rotþró sem hafði verið fyrir utan
bústaðinn hans var horfin. Hann tilkynnti stuldinn til lögreglu
umsvifalaust og gaf skýrslu. Smiður sem vann við sumarhúsið veitti því
síðar athygli að nýverið hefði rotþró verið sett niður við annað
sumarhús og tilkynnti það lögreglu.
Lögregla hafði samband við
sakborning í málinu sem neitaði þegar sök. Hann játaði að hafa sett
niður rotþró nýverið en hana hefði hann keypt sjálfur nokkrum dögum
fyrr. Gengið var á manninn að sýna kvittun en hann var viðskotaillur.
Fór svo að rotþróin var grafin upp.
Á svipuðum tíma fór maðurinn með kvittun fyrir rotþró og hengdi upp við
sumarhúsið þar sem hann tók hana í fyrsta stað. Eigandi sumarhússins fór
rakleiðis með kvittunina til lögreglu og reyndist hún fölsuð. Við
yfirheyrslu hjá lögreglu játaði maðurinn að hafa látið breyta umræddri
kvittun fyrir sig og hengt hana fyrir utan bústaðinn í þeim tilgangi að
hreinsa sig af áburði um þjófnað.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent Skilorðsbundinn dómur fyrir skjalafals
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Dæmdur fyrir að stela rotþró
- Mánudagur, 20. desember 2010, Innlent Leiðrétt: Dæmdur fyrir skjalafals ekki þjófnað
- Miðvikudagur, 13. janúar 2010, Innlent Fangelsi fyrir innbrot
- Mánudagur, 10. janúar 2011, Innlent Tvírukkaður fyrir hreinsiþjónustu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































