„Hrein og klár haustmerki“
Það snjóaði efst í Esjunni í nótt og hafi einhver verið í vafa þá er haustið komið. Svalt loft er yfir landinu og víða var næturfrost. „Þetta eru hrein og klár haustmerki,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við mbl.is.
Einar segir að það hafi verið hægviðrasamt á landinu í gærkvöldi og að rof hafi verið í skýjahulunni. Þá kólni á landinu en á nokkrum stöðum mældist frost í nótt, þó fyrst og fremst á láglendi á Norðausturlandi.
„Það var frekar svalt loft yfir landinu og frostmarkshæðin hefur verið í 800 til 1000 metra hæð. En lægri norðan- og norðaustanlands. Það var til að mynda frost á Öxnadalsheiðinni í nótt og á fjallvegum á Norðausturlandi. Sumstaðar gerði ofan í þetta smá slydduél, og situr auðvitað í hæstu fjöllum,“ segir Einar.
Einar bendir á að haustin á Íslandi séu oft löng. Það sé oft mun erfiðara að tala um vetrarbyrjun heldur en haustbyrjun. Snjór efst í Esjunni eigi því ekki að koma neinum á óvart eftir 20. september.
Að sögn Einars verður áfram svalt loft yfir landinu næstu tvo sólarhringa. Síðan tekur að hlýna hægt og rólega. Mildara loft úr suðvestri mun eiga greiðari leið til landsins, eða um næstu helgi. „Það verður mildara í lofti,“ segir Einar.
Þegar komið sé fram yfir jafndægur þá frysti við jörð þegar kvöldin eru stillt og nætur bjartar, burtséð frá hitagæðum loftsins. „Það eru lögmál náttúrunnar,“ segir Einar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. ágúst 2011, Innlent Næturfrost fimm nætur í röð
- Laugardagur, 11. júní 2011, Innlent Í hringiðu háloftakulda
- Þriðjudagur, 4. október 2011, Innlent Hrím í Esjunni
- Föstudagur, 20. maí 2011, Innlent Hvítt vor á Norðurlandi
- Laugardagur, 16. október 2010, Innlent Veðrabrigði í nánd
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































