Trúverðugleiki Alþingis í húfi

Frá fundi í þingflokki VG.
Frá fundi í þingflokki VG. mbl.is/Árni Sæberg

„Trúverðugleiki Alþingis er í húfi að málið verði leitt til lykta á málefnalegan og lýðræðislegan hátt, án óþarfa tafa og undanbragða,“ segir í samþykkt þingflokks VG sem boðaður var til að ræða athugasemdir forsætisráðherra við störf þingmannanefndarinnar.

Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs minnir í samþykkt sinni á að Alþingi samþykkti samhljóða lög um skipan rannsóknarnefndar Alþingis og þingmannanefnd sem tæki við niðurstöðum hennar. Þverpólitísk samstaða hafi fram til þessa verið um störf beggja nefndanna.
 
„Þingflokkurinn þakkar þingmannanefndinni fyrir vel unnin störf, ber fullt traust til hennar og lýsir ánægju með vönduð vinnubrögð. Alþingi stendur frammi fyrir þeirri staðreynd að sjö af níu nefndarmönnum leggja til að mál verði höfðað gegn fyrrverandi ráðherrum og verður nú að axla sína ábyrgð í málinu,“ segir í samþykkt flokksins.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert