Hættumerkin fyrir hendi
Mjög þunn lína er á milli hryðjuverkastarfsemi og skipulagðrar glæpastarfsemi, s.s. dreifingu fíkniefni, mansals og vændis, og gömul saga og ný að hryðjuverk víða í heiminum eru fjármögnuð með skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta kom fram í máli Jóhanns R. Benediktssonar, fyrrverandi lögreglustjóra á Suðurnesjum, á málþingi Lögréttu, félags laganema við HR, um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu.
Ragna Árnadóttir fyrrverandi dómsmálaráðherra fól í síðasta mánuði réttarfarsnefnd að meta heimildir lögreglu til forvirkra rannsókna. Á nefndin að gera tillögur um nauðsynlegar breytingar á lögum í því skyni að markmið aðgerðaáætlunar gegn mansali, sem samþykkt var á Alþingi 2009, náist og lögreglan styrkist til þess að stemma stigu við skipulagðri glæpastarfsemi. Meðal atriða sem ráðherra hefur lagt áherslu á er að slíkar heimildir verði aðeins samþykktar undir ströngu eftirliti og allra mannréttinda verði gætt.
Keflavíkurflugvöllur skiptistöð í mansalsmálum
Jóhann sagðist mjög fylgjandi forvirkum rannsóknarheimildum tilhanda lögreglu. Hann lýsti í stuttu máli reynsluheim sínum af öryggismálum og benti á að forréttindi séu að búa á Íslandi, enda hnattræn staða - og sú staðreynd að um eyju er að ræða - ákjósanleg út frá öryggissjónarmiðum.
En þrátt fyrir það sagði hann hættur víða leynast. Hann minntist meðal annars á það, þegar mansalsmál færðust í aukanna á Keflavíkurflugvelli. „Okkur til skelfingar áttuðum við okkur á því að Keflavíkurflugvöllur var skiptistöð í ótal mansalsmálum á árunum 2002-2004. Við ákærðum í fjölda mála, en höfðum ekki nægar sannanir til að ákæra fyrir mansal heldur smygl á fólki. [...] Á þeim tíma þótti fjarstæðukennt að hugsa um mansal sem hluta af íslenskum veruleika. En í dag vitum við betur.“
Jóhann sagði íslenska lögreglu meðal annars þurfa umræddar heimildir til að standa jafnfætis kollegum sínum í öðrum vestrænum löndum. Lögreglan hér á landi hafi rýrari heimildir en í öðrum ríkjum. Hann sagði hættumerki fyrir hendi, og þó svo hryðjuverkaógn sé lítil hafi skipulagðri glæpastarfsemi vaxið fiskur um hrygg og hlutirnir geti breyst afar hratt. Í því samhengi minnti hann meðal annars á Múhameðsteikningarnar í Danmörku og þakkaði raunar fyrir að ekki hafi verið um teikningar Sigmund að ræða í Morgunblaðinu.
Aðvörunarbjöllur hringja
Þess má geta að núverandi dómsmálaráðherra, Ögmundur Jónasson, viðraði þegar - og aftur - efasaemdir sínar um forvirkar rannsóknarheimildir á sama tíma og Ragna fól réttarfarsnefnd að kanna málið Þá sagði hann m.a: „Það hringja strax aðvörunarbjöllur. Við þurfum að fara mjög varlega í þessum efnum. Svona hugmyndir hafa áður verið slegnar útaf borðinu, af ótta við að við færum að feta okkur inn á starfsaðferðir lögregluríkja. Það eigum við ekki að gera undir neinum kringumstæðum.“





































