Setji hömlur á spákaupmennsku
Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara og þingmaður græningja á Evrópuþinginu, vill að hömlur verði settar á spákaupmennsku með hráefnisvörur. Sú staða sé komin upp að sum fátæk ríki hafi ekki lengur efni á að flytja inn matvörur.
Joly, sem fer fyrir nefnd um þróunarmál innan Evrópuþingsins, gerði þróunina að umtalsefni í þingræðu í dag þar sem hún fordæmdi fjárfesta fyrir að veðja á hækkanir á hráefnisvörum.
„Árum saman höfum við hvatt þróunarlönd til að hverfa frá undirstöðulandbúnaði og taka staðinn upp stórfellda framleiðslu á landbúnaðarvörum til útflutnings, á borð við tóbak. Þessi ríki eru því orðin mjög háð innflutningi. Sú staða er hins vegar komin upp að þau eru að flytja inn vörur á háu verði og geta ekki lengur flutt út vörur,“ segir Joly um vítahring hærra innflutningsverðs og lamandi áhrif þess á útflutning.
„Það er afleit staðreynd að við getum ekki smíðað lagaramma utan um þessa markaði. Við höfum ekkert lært af síðustu kreppu. Við getum smíðað regluverk utan um spákaupmennsku ef við viljum.“
Efast um vilja einstakra Evrópuríkja
Joly efast um vilja einstakra Evrópuríkja til að stíga skref í þessa veru en til að sporna gegn viðskiptum af þessum toga vill hún að fjárfestingarfyrirtækjum verði gert óheimilt að fjárfesta meira en sem nemur 3% af fjárfestingum þeirra í hráefnisvörum.
Þá þurfi að auka gegnsæi á markaðnum þannig að ljóst sé hverjir standi að baki viðskiptum hverju sinni.
Má hér geta þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, Heimsviðskiptastofnunin og fleiri alþjóðastofnanir hafa sérstaklega hvatt til þess að losað verði um hömlur á verslun með landbúnaðarvörur, í því skyni að greiða fyrir útflutningi frá fátækum löndum.
20% má rekja til viðskipta
Þess má jafnframt geta að Joly ræddi mengunina sem hlýst af flutningi varnings heimshorna á milli í samtali við Karl Blöndal í Morgunblaðinu nýverið.
Þar sagði hún að 20% af útblæstri gróðurhúsalofttegunda mætti rekja til viðskipta.
„Það þýðir að ef við myndum hætta að borða vínber frá Argentínu í janúar myndum við spara. Þetta er nýr hugsunarháttur,“ sagði Joly í viðtalinu.
Vinsælli en Sarkozy
Að lokum má geta þess að Joly mælist nú 25. vinsælasti stjórnmálamaður Frakklands í nýrri skoðanakönnun Ipsos, að því er Aftenposten greinir frá í dag.
Er hún því 10 sætum fyrir ofan Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta sem er í 35 sæti listans.






































