Íbúarnir óskuðu eftir breytingu á Suðurgötu
Suðurgata er einstefnugata fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi mbl.is/Golli
Engar kvartanir hafa borist frá íbúum Vesturbæjar vegna breytinga sem gerðar voru á Suðurgötunni fyrir skömmu, að sögn Karls Sigurðssonar, formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Segir hann að götunni hafi m.a. verið breytt í einstefnugötu að beiðni íbúa götunnar en gatan er afar þröng fyrir umferð í báðar áttir.
Karl segir eðlilegt að einhverjir eigi erfitt með að átta sig á breytingunni fyrst um sinn, en nú er Suðurgata einstefnugata fyrir akandi umferð til suðurs frá Kirkjugarðsstíg að Skothúsvegi en tvístefnugata fyrir hjólandi umferð.
Umferð beint úr hjarta miðborgarinnar
Hann bendir fólki á að þægilegt sé að aka annað hvort um Fríkirkjuveg eða Hofsvallagötu. Þær götur henti mun betur fyrir mikla umferð heldur en smærri götur í nágrenni Suðurgötu, svo sem Tjarnargötu og Ljósvallagötu. Hann segir að með breytingunni sé líka verið að tengja miðborgina við Háskóla Íslands á sama tíma og umferðinni sé beint frá innsta hring miðborgarinnar.
Á fundi borgarráðs í gær óskaði Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins eftir því að bókað yrði að hann telji ákvörðun um einstefnu á Suðurgötu milli Kirkjugarðsstígs og Skothúsvegar hafi verið misráðin og hvetur umhverfis- og samgönguráð til að endurskoða hana.
„Breytingin hefur nú þegar haft þær óæskilegu afleiðingar í för með sér að umferð, sem áður fór norður Suðurgötu, leitar nú um nærliggjandi íbúagötur, t.d. um Tjarnargötu og Ljósvallagötu," segir í bókun Kjartans.
Hámarkshraði á Suðurgötu er 30 km á klst. og segir Karl að því miður hafi verið allt of algengt að ökumenn hafi virt hraðatakmarkanir að vettugi og ekið á 50 km hraða eða jafnvel allt að 70 km hraða um götuna. Hann segist ekki óttast það að umferðarhraðinn aukist í kjölfar breytingar á götunni. Hann segir að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafi verið upplýst um breytingarnar og á von á því að eftirlit lögreglu muni aukast á næstunni við Suðurgötu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 27. september 2010, Innlent Ekki kynnt fyrir íbúum
- Miðvikudagur, 20. júlí 2011, Innlent Bann án viðurlaga á Suðurgötu
- Föstudagur, 24. desember 2010, Innlent Sýni biðlund í kirkjugörðunum
- Laugardagur, 5. september 2009, Innlent Krefst heiðarleika af hálfu stjórnvalda
- Sunnudagur, 27. september 2009, Innlent Lögregluaðgerð í Reykjanesbæ
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































