Mega leita ráðgjafar Ríkisendurskoðunar
Starfsmenn Ríkisendurskoðunar geta talist vanhæfir í skilningi stjórnsýsluréttar ef mál varða nána venslamenn þeirra. Þá hafa forstöðumenn ríkisstofnana almennt heimild til að leita ráðgjafar Ríkisendurskoðunar um fjárreiðutengd málefni.
Þetta kemur fram í lögfræðiáliti sem stofnunin hefur látið vinna vegna þess að nýlega vöknuðu spurningar um mögulegt vanhæfi starfsmanna stofnunarinnar. Sveinn Arason ríkisendurskoðandi er mágur fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, Kristjáns L. Möller, og Lárus Ögmundsson, yfirlögfræðingur stofnunarinnar, er mágur núverandi forsætisráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur.
Fyrr á þessu ári komu fram á opinberum vettvangi vangaveltur um hvort ríkisendurskoðandi og yfirlögfræðingur Ríkisendurskoðunar væru hugsanlega vanhæfir til að fjalla um málefni sem heyrðu undir fyrrnefnda ráðherra og jafnvel aðra ráðherra eða ríkisstjórnina í heild. Samkvæmt lögfræðiálitinu veldur vanhæfi starfsmanns til að fjalla um málefni eins ráðherra ekki því að hann verði talinn vanhæfur til að fjalla um málefni annarra ráðherra, sem ekki eru skyldir honum eða mægðir, né ríkisstjórnar í heild.
Mega leita ráðgjafar Ríkisendurskoðunar
Í vor varð ágreiningur milli þáverandi heilbrigðisráðherra og forstjóra Sjúkratrygginga Íslands vegna þess að sá síðarnefndi hafði leitað til ríkisendurskoðanda eftir leiðbeiningu um framkvæmd reglugerðar. Taldi ráðherrann að með þessu hefði forstjórinn brotið gegn trúnaðar- og hollustuskyldum sínum gagnvart sér.
Í lögfræðiálitinu segir að vandséð sé að forstöðumenn ríkisstofnana brjóti gegn starfsskyldum sínum með því einu að leita ráðgjafar Ríkisendurskoðunar um fjárreiðutengd málefni. Af hlutverki Ríkisendurskoðunar og markmiðum endurskoðunar leiði að stofnunin hafi heimild til að veita starfsfólki stjórnsýslunnar ráðgjöf á þessu sviði. Hún sé til þess fallin að stuðla að réttri framkvæmd reglna og hljóti að teljast lögmæt, eðlileg og jafnvel æskileg.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 7. apríl 2010, Innlent Ákvörðun Álfheiðar „ólíðandi“
- Fimmtudagur, 8. apríl 2010, Innlent Sendi ráðherra andmæli
- Þriðjudagur, 17. nóvember 2009, Innlent Gerði úttekt á Varnarmálastofnun
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Dómar hafa fyrnst vegna húsnæðisvanda í fangelsum
- Þriðjudagur, 23. ágúst 2011, Innlent Skólahaldi frestað fram í nóvember
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































