Umskipti í stjórn VGR
Sólveig Anna Jónsdóttir var kjörin formaður Vinstri grænna í Reykjavík fyrir skömmu með 113 atkvæðum. Mótframbjóðandi hennar, Andrés Ingi Jónsson hlaut 57 atkvæði. Sólveig er ein níumenninganna sem hafa verið ákærðir fyrir árás á Alþingi.
Andrés Ingi var áður aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra í tíð Álfheiðar Ingadóttur og var hann boðinn fram til formanns félagsins af uppstillingarnefnd. Þegar kjörstjórn hafði borið upp tillögu sína að formanni og stjórn á fundinum steig Kolbrún Halldórsdóttir upp í pontu og lagði til að Sólveig yrði boðin fram til formanns gegn Andrési. Sólveig tók við tillögunni og gengið var til kjörs á þessum fjölmennasta aðalfundi félagsins til þessa.
Þetta er í fyrsta sinn sem tvö framboð eru boðin fram til formanns félagsins.
Í stjórn ásamt Sólveigu voru kjörin Brynja Björg Halldórsdóttir formaður Ísafoldar, félags ungs fólks gegn ESB aðild, Ellen Kristjánsdóttir söngkona, Garðar Mýrdal, Hermann Valsson, Friðrik Dagur Arnarson og Birna Magnúsdóttir.
Bloggað um fréttina
-
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Til hamingju VG í Reykjavík. -
Vésteinn Valgarðsson Glæsileg niðurstaða -
Luktar-Gvendur leikræn bylting
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. september 2010, Innlent Flókin blanda margþættra átaka hjá VG
- Sunnudagur, 20. september 2009, Innlent Nýr formaður ungra VG í Reykjavík
- Fimmtudagur, 13. október 2011, Innlent Ný stjórn Sterkara Íslands
- Föstudagur, 30. apríl 2010, Innlent Mun reyna að setja niður deilur
- Sunnudagur, 10. apríl 2011, Innlent Guðfríður Lilja sett af
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































