Áfengi fannst í bifreiðinni
Hlynur Sigurðsson, hlynur@mbl.isHarður árekstur var við Bústaðarveg snemma í morgun en bifreið, sem ekið var í austurátt lenti í árekstri við strætisvagn á mótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar. Einn farþegi strætisvagnsins var fluttur á slysadeild en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Áreksturinn var þó það harður að loka þurfti Bústaðarvegi og Háaleitisbraut um tíma vegna slyssins.
Tildrög þess voru með þeim hætti að Tollgæslan veitti bifreiðinni eftirför, en grunur lék á að í henni fyndist nokkurt magn áfengis sem smyglað var af svæði tollgæslunnar við Sundahöfn. Bifreiðin sinnti ekki stöðvunarmerkjum tollgæslunnar. Hún mun þó hafa óskað eftir aðstoð lögreglu en engin lögreglubifreið var til reiðu til að sinna kallinu.
Samkvæmt heimildum Mbl sjónvarps fannst nokkurt magn áfengis í bifreiðinni.
Frétt á vef Tollstjórans: Á sjöunda tímanum í morgun veitti tollgæslan jeppabifreið eftirför frá Sundahöfn í Reykjavík.
Tollverðir reyndu ítrekað að fá ökumanninn til þess að stöðva bifreiðina með merkjagjöf en án árangurs. Haft var samband við lögreglu sem kom strax á vettvang.
Ökumaður jeppabifreiðarinnar missti stjórn á bifreiðinni á gatnamótum Bústaðarvegar og Háaleitisbrautar með þeim afleiðingum að hann ók yfir umferðareyju og í veg fyrir strætisvagn.
Maðurinn sem er skipverji á vöruflutningaskipi Eimskips var að koma út af athafnasvæði skipafélagsins þegar eftirförin hófst. Tollstjóri hafði samband við Eimskip og var tjáð að tekið yrði á málinu í samvinnu við tollgæsluna.
Við leit í bifreiðinni fundu tollverðir talsvert magn af smyglvarningi, en ekki er hægt að greina frá magni á þessari stundu.
Bloggað um fréttina
-
Jón Aðalsteinn Jónsson Gaman væri að vita. -
Viggó Jörgensson Tollgæslubifreiðar hafi blá blikkljós -
Ómar Geirsson Var þetta ekki sprengja??? -
Sóldís Fjóla Karlsdóttir Hversvegna var Tollgæslan í eltingaleik ..... -
Sigurður Hreiðar Bústaður? -
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Tollurinn stefnir lífi fólks í hættu fyrir nokkra lítra af ...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 11. febrúar 2011, Innlent Sparkað í ímyndaða fjendur
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Gosið náði upp á yfirborðið klukkan 8:30
- Þriðjudagur, 29. desember 2009, Innlent Átök innan Vinstri grænna
- Miðvikudagur, 24. febrúar 2010, Innlent Varfærið mat á eignum
- Föstudagur, 27. maí 2011, Innlent Kraftmiklir kassabílar kepptu
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































