Einar Kr.: Sýnir forherðingu Samfylkingar
Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra á árunum 2005-2009, segir það sýna forherðingu Samfylkingarinnar þegar þetta lið reyni að þræta og bera af sér loddaraskapinn í fjölmiðlum. Skrif Einars á bloggvef hans tengjast ákvörðun Alþingis í gær að ákæra Geir H. Haarde.
„Síðast liðinn mánudag gengu staflaust um Alþingishúsið sögur um að tilteknir þingmenn Samfylkingarinnar undirbyggju taktískar atkvæðagreiðslur vegna áforma um að ákæra fyrrverandi ráðherra. Ætlunin væri að tryggja að ráðherrar Samfylkingarinnar slyppu en ráðherrar Sjálfstæðisflokksins yrðu ákærðir. Þegar eftir þessu var gengið þverneituðu þingmenn Samfylkingarinnar að nokkuð slíkt væri í pípunum og sögðu hið augljósa; slíkt væri vitaskuld fáránlegt.
En annað kom í ljós í atkvæðagreiðslunum í gær. Þar birtist manni ömurlegur hráskinnsleikur og ótrúlegur loddaraskapur þar sem skrifað var upp um alla veggi. SAMFYLKINGIN SÉR UM SÍNA.
Þetta er augljóst.
Geir H. Haarde verður ákærður og sú ákvörðun tekin með 33 atkvæðum gegn 30. Það vildu 9 þingmenn Samfylkingarinnar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir verður EKKI ákærð og sú ákvörðun er tekin með 34 atkvæðum gegn 30. Fimm þingmenn Samfylkingarinnar vildu ákæra hana. Fjórir þingmenn flokksins sem vildu ákæra Geir vildu ekki ákæra Ingibjörgu
Árni M. Mathiesen verður EKKI ákærður. Það var ákveðið með 32 atkvæðum gegn 31. Sem sé. Einungis munaði einu atkvæði að hann yrði ákærður. Sjö þingmenn Samfylkingarinnar vildu ákæra Árna. Þar af sex sem ekki vildu ákæra annan hvorn fyrrverandi ráðherra Samfylkingarinnar.
Björgvin G. Sigurðsson verður EKKI ákærður. Þrír þingmenn Samfylkingarinnar vildu ákæra hann, en 9 þeirra Geir og sjö þeirra Árna.
Það þarf ekki vitnanna við. Þetta blasir við hverjum óvitlausum manni.
Nöfn þessara þingmanna sem hafa nú orðið berir að þessum fyrirlitlegu vinnubrögðum, eru skráð óafmáanlega í bækur Alþingis. Þar verða þau varðveitt um aldur og ævi þessu fólki til fullkominnar skammar.
En það sýnir svo forherðinguna, að í fjölmiðlum reynir þetta lið að þræta og bera af sér loddaraskapinn, sem við öllum blasir. Það er sem sagt ekki nóg með að þetta fólk stundi hér ómerkilegan hráskinnaleik sem ekki hefur fyrr sést í minni manna á Alþingi. Heldur er augljóst að það er einbeitt og forhert í athæfi sínu og bætir þannig gráu ofan á svart," skrifar Einar Kr. Guðfinnsson, þingmaður og fyrrverandi ráðherra.
Bloggað um fréttina
-
-
Haraldur Haraldsson Einar Kr.: Sýnir forherðingu Samfylkingar/Ekki aðeins þeirra einnig Framsókn!!!! -
Gunnar Th. Gunnarsson Jónas Kristjánsson -
Heimir L Fjeldsted Skítlegt eðli -
Kristinn Karl Brynjarsson Samfylkingin að pissa í skóinn sinn?
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 28. september 2010, Innlent Mál höfðað gegn Geir
- Miðvikudagur, 29. september 2010, Innlent Samfylking réð úrslitum
- Laugardagur, 11. september 2010, Innlent Takast á um tillögurnar
- Þriðjudagur, 28. september 2010, Innlent Málshöfðun á hendur Geir samþykkt
- Sunnudagur, 12. september 2010, Innlent Ekki þingmeirihluti fyrir ákæru á hendur Björgvini
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































