Gunnar Nelson á heimslistann

Gunnar Nelson.
Gunnar Nelson.

Íslenski bardagaíþróttamaðurinn Gunnar Nelson er kominn í efsta sæti á heimslita íþróttavefjarins MMA Planet yfir efnilegustu íþróttamenn í blönduðum bardagaíþróttum.

Í tilkynningu segir að Gunnar hafi verið að þokast ofar á listann undanfarið. Fyrst fór hann í efsta sæti Evrópulistans,síðan í efsta sæti listann yfir efnilegustu veltivigtarkeppendur í heimi og eftir sigurinn um síðustu helgi er hann kominn í efsta sæti heimslistans, burtséð frá þyngdarflokkum. Hann var áður númer 5 á þeim lista.

Á vefnum segir m.a. að sögusagnir séu um að stór íþróttafélög séu á höttunum eftir Gunnari, enda sé erfitt að finna verðuga andstæðinga utan þeirra.

http://mmaplanet.wordpress.com/2010/09/28/scouting-the-top-15-prospects/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert