Stefnan tekin á 50 þúsund slaufur
Guðbjartur Hannesson ráðherra nælir fyrstu slaufunum í barm þriggja kvenna. Frá vinstri eru Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður Krabbameinsfélagsins, Guðný Kristrún Guðjónsdóttir, Stefanía Guðmundsdóttir, Ágústa Erna Hilmarsdóttir, Guðbjartur, Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins og Ragnheiður I. Margeirsdóttir, sem hannaði slaufuna. mbl.is/Ómar Óskarsson
Bleika slaufan, árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélags Íslands, hefst formlega á morgun, föstudaginn 1. október 2010, og hefur félagið sett sér það markmið að selja 50 þúsund slaufur fram til 15. október þegar slaufusölunni lýkur.
Í ár var í fyrsta sinn haldin samkeppni um hönnun bleiku slaufunnar og bar Ragnheiður I. Margeirsdóttir sigur úr býtum. Var slaufan afhjúpuð í heilbrigðisráðuneytinu þegar Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra afhenti fyrstu slaufurnar þremur konum sem allar hafa barist við krabbamein. Þær heita Stefanía Guðmundsdóttir, Ágústa Erna Hilmarsdóttir og Guðný Kristrún Guðjónsdóttir.
„Þær Stefanía, Ágústa Erna og Guðný Kristrún fá fyrstu slaufurnar því að í okkar augum eru þær hvunndagshetjur, venjulegar konur sem þurfa að horfast í augu við erfiðan sjúkdóm. Þær eru á ólíkum aldri og berjast við ólík krabbamein en eiga það sameiginlegt að sýna mikið hugrekki og dugnað í að sinna málum er varða þá sem greinast með krabbamein,“ sagði Guðbjartur Hannesson heilbrigðisráðherra við athöfnina í dag og þakkaði Krabbameinsfélaginu fyrir ötula baráttu í gegnum tíðina.
Enn mætti þó gera betur og hvatti hann alla landsmenn til að kaupa bleiku slaufuna og kvaðst sjálfur myndi bera hana með stolti í október, til stuðnings góðu málefni, að því er segir í tilkynningu.
Undanfarinn áratug hefur Krabbameinsfélag Íslands beint sjónum landsmanna að krabbameinum kvenna í októbermánuði, einkum þó brjóstakrabbameini sem er algengast þeirra. Þetta hefur verið gert undir merki bleiku slaufunnar og bleiki liturinn verið notaður til að leggja áherslu á málefnið.
„Nú leggjum við aukna áherslu á krabbamein kvenna almennt, enda berst Krabbameinsfélagið gegn öllum krabbameinum. Við beitum okkur á mjög mörgum sviðum, s.s. í forvörnum og fræðslu, leit að krabbameinum á for- og frumstigi, ráðgjöf og stuðningi, rannsóknum, styðjum framfarir í meðferð og umönnun og tökum þátt í hagsmunabaráttu sjúklinga og aðstandenda þeirra, svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, í tilkynningu.
„Um 15 þúsund konur koma í Leitarstöð Krabbameinsfélagsins við Skógarhlíð á hverju ári og um fimm þúsund konur mæta i krabbameinsleit á vegum félagsins um allt land. Þetta veitir okkur tækifæri til að kynna konum ýmsar leiðir til að hafa áhrif á heilsuna, og það ætlum við að nýta okkur enn frekar.“
Á hverju ári velur Krabbameinsfélagið eitt hús á höfuðborgarsvæðinu til að lýsa upp í tilefni átaksins og verður Menntaskólinn í Reykjavík baðaður bleiku ljósi að þessu sinni. „Menntaskólinn í Reykjavík er elsta menntastofnun landsins og þótti okkur það fara vel saman við áherslu á fræðslustarf Krabbameinsfélagsins að lýsa skólann bleikan í ár," segir Yngvi Pétursson rektor og hvetur fólk til að festa kaup á bleiku slaufunni og styðja þannig við mikilvægt starf Krabbameinsfélags Íslands, samkvæmt tilkynningu.
Fleiri byggingar og svæði um land allt eru einnig lýst upp til að vekja athygli á átakinu.






































