Hörð gagnrýni á Hraðbraut

Menntaskólinn Hraðbraut hefur starfað í nokkur ár - myndin tengist fréttinni ekki á annan hátt ... stækka

Menntaskólinn Hraðbraut hefur starfað í nokkur ár - myndin tengist fréttinni ekki á annan hátt en þetta er frá útskrift stúdenta frá skólanum mbl.is/Jim Smart

Ríkisendurskoðun gagnrýnir starfsemi menntaskólans Hraðbrautar harðlega í nýrri skýrslu. Þar kemur fram að skólinn hafi fengið tæplega 200 milljónum of mikið frá ríkinu. Á sama tíma hafi eigandi skólans greitt sér 82 milljónir í arð og aðilar tengdir eiganda skólans hafi fengið 50 milljónir að láni frá skólanum. Að mati Ríkisendurskoðunar eru þessar lánveitingar óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans.

Í júní sl. bað mennta- og menningarmálaráðuneytið Ríkisendurskoðun um að kanna framkvæmd þjónustusamnings ráðuneytisins við Hraðbraut ehf. sem rekur Menntaskólann Hraðbraut.

Í nýrri greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að á tímabilinu 2003–2009 reyndust nemendur skólans um fimmtungi færri en áætlanir samningsins gerðu ráð fyrir. Framlög ríkisins voru hins vegar miðuð við þessar áætlanir og fékk skólinn samtals 192 milljónir króna umfram það sem honum bar á tímabilinu.

Fékk 82 milljónir í arð en í raun hafði skólinn ekki bolmagn til þess að greiða arð

Fram kemur að á tímabilinu hafi arðgreiðslur skólans til eigenda hans numið samtals 82 milljónir króna. Ríkisendurskoðun telur að skólinn hafi í raun ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að greiða þennan arð.

Þá kemur fram að lán skólans til aðila tengdra eigendum hans hafi numið samtals 50 m.kr. í árslok 2009. Að mati Ríkisendurskoðunar eru þessar lánveitingar óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans. Stofnunin telur óvíst að fjárhagslegar forsendur séu fyrir áframhaldandi rekstri hans.

Gefur eftir skuld en hefur ekki heimild til þess

Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun ekki fara fram á að skólinn endurgreiði ofgreidd framlög á tímabilinu 2004–2006 en þau nema rúmlega 126 milljónum króna.

„Að mati Ríkisendurskoðunar hefur ráðuneytið ekki heimild til að gefa eftir þessa skuld. Þess má geta að á umræddu tímabili nam hagnaður skólans um 57 m.kr. og arðgreiðslur til eigenda um 24 m.kr. Lán skólans til aðila tengdra eigendum hans námu 16 m.kr. í árslok 2006.

Samkvæmt skýru ákvæði í þjónustusamningnum skal árlega fara fram uppgjör þar sem áætlun um nemendafjölda og framlög er borin saman við rauntölur.

Í greinargerðinni segir að slíkt uppgjör hafi aldrei farið fram og er það gagnrýnt. Að lokum skal þess getið að úttekt Ríkisendurskoðunar náði eingöngu til fjárhagslegra þátta og ekki til faglegs starfs Hraðbrautar," segir í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun.

Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbrautar, er aðaleigandi skólans.

Umfjöllun mbl.is um skólann í sumar

Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar.

Ólafur Haukur Johnson, skólastjóri Hraðbrautar. mbl.is/Eggert

PDF-skrá Skýrsla Ríkisendurskoðunar varðandi starfsemi Hraðbrautar
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vor í Tungunum - www.eyjasolibudir.is
Falleg sumarhús til leigu um helgar og virka daga. Fallegt umhverfi. Heit laug o...
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
Peougut 406. Sjálfskiptur, nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Peougut 406 árg. 1997, ekinn 169 þúsund km. Bíllinn er sjálfskiptur og ...
Nettir dökkbrúnir leðursófar til sölu
Tveir dökkbrúnir sex mánaða gamlir sófar úr IKEA til sölu vegna breytinga. Fást ...
 
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...