Aftur auglýst eftir framkvæmdastjóra
Starf framkvæmdastjóra Íbúðarlánasjóðs er auglýst að nýju í Morgunblaðinu í dag. Þetta er í annað sinn sem staðan er auglýst, en stjórn sjóðsins komst ekki að niðurstöðu um ráðningu þrátt fyrir marga fundi.
Samkvæmt auglýsingunni þarf framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs að hafa háskólapróf sem nýtist í starfi og búa yfir víðtækri þekkingu og reynslu af fjármálastarfsemi. Þá er þekking á íbúðalánum sögð æskileg og sömuleiðis reynsla af stjórnun og rekstri. Þetta eru sömu hæfnisskilyrði og voru í fyrri auglýsingu um starfið sem birtist 30. apríl. Umsóknarfrestur rennur út 17. október.
Ráða átti í starf framkvæmdastjóra 1. júlí, en þá lét Guðmundur Bjarnason af starfi. Síðan hefur Ásta H. Bragadóttir gegnd starfi framkvæmdastjóra til bráðabirgða.
27 sóttu upphaflega um starf framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs og voru fjórir umsækjendur kallaðir í viðtal: Ásta H. Bragadóttir, Elín Sigrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, Guðrún Árnadóttir, ráðgjafi og Yngvi Örn Kristinsson, ráðgjafi.
Stjórnin hélt marga fundi um málið í sumar án þess að komast að niðurstöðu. Í lok ágúst ákvað stjórnin að skipa þriggja manna valnefnd til að fara yfir umsóknir, en það var gert í kjölfar þess að Árni Páll Árnason þáverandi félagsmálaráðherra beindi þeim tilmælum stjórnar að skipa valnefnd. Í kjölfarið dró Ásta H. Bragasóttir umsókn sína til baka, en fyrir lá að meirihluti var innan stjórnar Íbúðalánasjóðs að ráð hana í starfið.
Bloggað um fréttina
-
Sigurður Sigurðsson Djöfull gengur ílla að koma Yngva í jobbið. -
S i g u r ð u r Sigurðarson Hörmulega illa staðið að ráðningu framkvæmdastjóra
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 20. október 2010, Innlent Á þriðja tug umsókna
- Fimmtudagur, 26. ágúst 2010, Innlent Valnefnd um Íbúðalánasjóð
- Laugardagur, 9. október 2010, Innlent Ráðningamálin eru aftur á byrjunarreit
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Segir sátt nauðsynlega um ráðningu
- Þriðjudagur, 2. nóvember 2010, Innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































