Hægt að spara 50% með nýjum lömpum
Samstarfsverkefni Orkuseturs og Vistvænnar Orku efh. um tilraunaræktun með ljósdíóðu-lömpum bendir til að spara megi um og yfir 50% í raforkunotkun til gróðurhúsalýsingar.
Þetta kemur fram í frétt frá Orkustofnun. Garðyrkjubændur nota um 60 GWh á ári til gróðurhúsalýsingar í atvinnuskyni sem er svipuð notkun og 12 þúsund heimili nota árlega. Hækkun raforkuverðs vegur þungt í þessari atvinnugrein en til að bæta samkeppnisstöðu greinarinnar niðurgreiðir ríkið kostnað við raforkudreifingu. Árið 2008 greiddi ríkið um 167 milljónir í niðurgreiðslur á raforkudreifingu til greinarinnar. Það ætti því að vera hagsmunamál ríkis og garðyrkjubænda að reyna með öllum hætti að lækka raforkukostnað.
Orkusetur iðnaðarráðuneytisins og Vistvæn Orka ehf hafa verið í samstarfi um prófanir á ljósdíóðulömpum sem þróaðir eru á Íslandi. Fyrirtækið Vistvæn Orka ehf. hefur unnið að þróun á hagkvæmum gróðurhúsalömpum sem byggja á LED ljósdíóðutækni og ætlaðir eru fyrir garðyrkjubændur sem hafa matjurta- og blómarækt að atvinnu.
Fyrstu niðurstöður prófana liggja nú fyrir og gefa væntingar um að draga megi stórlega úr raforkunotkun og þar með rekstrarkostnaði garðyrkjubænda. Niðurstöður tilraunaræktunar á papriku og rósum undir LED raflýsingu í tilraunagróðurhúsi LBHÍ að Reykjum benda til þess að hægt sé að ná fram verulegum raforkusparnaði í blóma- og matjurtarækt, án þess að það komi niður á gæðum eða uppskerumagni. Raforkusparnaður reynist vera um og yfir 50% í paprikurækt og um 50% í rósarækt. Ljósdíóðulamparnir og straumgjafar stóðust einnig allar kröfur um endingu, ljósmagn, áreiðanleika og nýtni.
Þessar fyrstu niðurstöður benda því til að þessi nýja tækni geti mögulega helmingað raforkukostnað garðyrkjubænda. Hugsanlega er því hægt að spara 30 GWh í garðyrkju á Íslandi án þess að draga úr framleiðslunni. Raforkuna sem hægt væri að spara mætti nýta til að knýja um 20 þúsund rafbíla svo dæmi sé tekið.
Að lokum skal þess getið að LED ljósdíóðulampar eru umhverfisvænir og innihalda t.d ekkert kvikasilfur líkt og hefðbundnir HPS gróðurhúsalampar gera.
Bloggað um fréttina
-
Björn Birgisson Góð frétt fyrir notendur og neytendur -
Teitur Haraldsson Mig grunar það vanti stofnkostnaðinn
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 29. september 2009, Innlent „Þetta er mjög pirrandi ástand"
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Mótmæltu háu raforkuverði
- Laugardagur, 20. febrúar 2010, Innlent Hægt að spara milljarða
- Föstudagur, 22. janúar 2010, Innlent Almenn raforkunotkun dróst saman á síðasta ári
- Föstudagur, 10. desember 2010, Innlent 220 milljónir í umferðaröryggi
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































