Búið að slökkva elda
Búið er að slökkva eld, sem logað hefur á Austurvelli í kvöld. Lögreglan er nú stugga við síðustu mótmælendunum á vellinum en mjög fámennt var orðið á Austurvelli undir miðnætti.
Austurvöllur er illa leikinn eftir mótmæli kvöldsins en áætlað er að um 7000 manns hafi verið í miðborginni þegar mest var. Greinar voru rifnar af trjám og settar á bálið og sömuleiðið garðbekkir. Þá er mikið af rusli. Lögreglan vinnur nú við að fjarlægja tunnur af Austurvelli en mótmælendur börðu á þær fyrr í kvöld.
Lögreglan var um miðnættið að ræða við hóp mótmælenda utan við veitingahúsið Café Paris og biðja þá um að koma sér á brott. Slökkviliðsmenn voru einnig á Austurvelli.
Grjót buldi á bílum þingmanna og ráðherra þegar þeim var ekið upp úr bílakjallara Alþingis í kvöld og dæmi voru um að veist hafi verið að alþingismönnum þegar þeir yfirgáfu þinghúsið.
Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn, sagði að lögregla hefði ekki getað komið í veg fyrir grjótkastið. Mótmælendur hefðu kastað því af töluverðu færi, hefðu einfaldlega látið vaða ofan í kjallarann og hitt einhverja bíla. Áður hafði skoteldatertu verið kastað ofan í kjallarann. Enginn var handtekinn vegna þessara atvika.
Geir Jón telur að aðgerðir lögreglu hafi tekist eins vel og framast var unnt. Miklu hefði munað um álgirðinguna sem reist var framan við Alþingishúsið. „Það var auðséð að þeir sem ætluðu sér að fara í okkur áttu óhægt um vik,“ sagði hann.
Meirihluti þeirra sem tóku þátt í mótmælunum gerðu það á friðsamlegan hátt en tiltölulega lítill hópur lét ófriðlega og nokkrir virtust nýta tækifærið til að grýta húsið, án þess að nokkru sérstök ástæða önnur en skemmdarfýsn lægi að baki. Eggjum, málningu, golfkúlum, glerflöskum, stórum spýtum og fleiru var kastað að Alþingishúsinu. Rúður brotnuðu í húsinu og a.m.k. einn mótmælandi fékk glerílát í höfuðið svo skurður hlaust af.
Bloggað um fréttina
-
Lísa Björk Ingólfsdóttir Fólk vill úrræði - ekki hættuástand! -
Viggó Jörgensson Heimafólk stóð fyrir skrílslátum. -
Sigurður Haraldsson Núna er eldurinn slökktur!
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 1. október 2010, Innlent Hreinsað til eftir mótmælin
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent Ófriðarbál á Austurvelli
- Mánudagur, 4. október 2010, Innlent Málningu skvett á þinghúsið
- Mánudagur, 4. október 2010, Innlent Réttlæti og heiðarlegt uppgjör
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent Fámenni á Austurvelli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































