Farið fram á framlengingu gæsluvarðhalds
Lögreglan á Selfossi mun óska eftir framlengingu gæsluvarðhalds yfir karlmanni á þrítugsaldri sem réðst á unga konu í Hveragerði fyrir viku. Gæsluvarðhald yfir manninum rennur út í dag. Maðurinn var handtekinn við Rauðavatn er hann var á leið til Reykjavíkur eftir að hafa barið konuna með barefli.
Um kl. tíu á mánudagsmorgun var lögregla kölluð að íbúðarhúsi í Hveragerði vegna manns sem hafði brotið sér leið inn og ráðist á konu. Maðurinn hvarf af vettvangi í bifreið sem hann ók en var handtekinn við Rauðavatn af lögreglumönnum á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var færður í fangageymslu á Selfossi.
Konan var flutt á slysadeild Landspítala þar sem gert var að áverkum hennar sem voru einkum á höfði. Réttarmeinafræðingur var fenginn til að meta áverkana og taldi að þeir hefðu hlotist af barefli. Maðurinn og konan þekkjast en ekki liggur fyrir um aðdraganda árásarinnar og er sá þáttur meðal annars til rannsóknar.
Konan er ekki með alvarlega áverka en með tilliti til þess að maðurinn beitti vopni er verknaðurinn alvarlegur, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi í síðustu viku.
Maðurinn var með í fórum sínum lítilræði af amfetamíni auk þess var hann ekki með ökuréttindi og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent Gæsluvarðhald framlengt yfir árásarmanni
- Föstudagur, 5. ágúst 2011, Innlent Krefjast gæsluvarðhalds áfram
- Fimmtudagur, 4. ágúst 2011, Innlent Gæsluvarðhaldsúrskurður staðfestur
- Þriðjudagur, 17. ágúst 2010, Innlent Fréttatilkynningar að vænta
- Fimmtudagur, 21. október 2010, Innlent Fær bætur vegna gæsluvarðhalds
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































