„Tunnumótmæli“ við stefnuræðu

Mótmælin á Austurvelli fyrir upphaf fyrsta þingfundar í síðustu viku.
Mótmælin á Austurvelli fyrir upphaf fyrsta þingfundar í síðustu viku. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Tunnumótmæli“ hafa verið boðuð við alþingishúsið í kvöld þegar Jóhanna Sigurðardóttir flytur stefnuræðu sína. Í boðun mótmælanna er fólk beðið að koma með áhöld sem heyrist vel í.

Þingfundur er boðaður klukkan 19.50 í kvöld. Eina málið á dagskrá er stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

Í útkalli mótmælenda á samskiptavefnum Facebook segir meðal annars:  „Við skulum skapa henni réttan undirleik og umgjörð. Ómsterkir eða stórir hljómgjafar eru afar vel séðir. Mætum í öllum okkar fjölbreytileik og stöndum saman í því að koma vantrausti okkar á því sem fram fer innan þingsins á framfæri.“

Verið er að mótmæla aðild Alþingis að fjármálakreppunni sem og atkvæðagreiðslunni um landsdóm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert