Starfsfólk mótmælir í Eyjum

mbl.is/ÞÖK

 
 
Starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja mótmæla harðlega fyrirhugðum niðurskurði á fjárframlögum til reksturs stofnunarinnar árið 2011. Þetta kemur fram í ályktun sem þeir hafa sent frá sér. 

„Niðurskurður af þessum toga er ekkert annað en tilfærsla á þjónustu frá landsbyggðinni til höfuðborgarinnar, án þess að nokkuð sparist í raun.
Við lítum svo á að til grunnþjónstu í Vestmannaeyjum teljist heilsugæsla,fæðingahjálp og slysa- og bráðaþjónusta. Öllum má vera það ljóst að með aðgerðum sem þessum, verður stórkostlega vegið að öryggi íbúanna."
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert