„Vegið að búsetu og lífskjörum í Skagafirði"

Sauðárkrókur stækka

Sauðárkrókur mbl.is

Sveitarstjórn Skagafjarðar mótmælir harðlega þeirri aðför að heilbrigðisþjónustu í héraðinu sem boðuð er í frumvarpi til fjárlaga næsta árs og krefst þess að þau áform verði dregin til baka. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Allar hefðir í samskiptum ríkis og sveitarfélaga eru þverbrotnar með því að lagðar eru fram einhliða og án samráðs, tillögur sem fela í sér grundvallarbreytingar á skipulagi þeirrar heilbrigðisþjónustu sem byggð hefur verið upp í landinu á undanförnum áratugum hvað varðar aðgengi á jafnréttisgrunni að heilbrigðis- og sjúkraþjónustu. Landsbyggðin er afar hart leikin í fjárlagatillögum stjórnvalda og felst í þeim nánast aðför að heilbrigðisþjónustu í heilu landshlutunum. Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki er ætlað að taka á sig um 30% niðurskurð til viðbótar við þau 11% sem hún þarf að þola á yfirstandandi ári. Ef tillögurnar ganga eftir mun stofnunin ekki halda velli í núverandi mynd, ásamt því að stór hluti af þeirri þjónustu sem hún hefur veitt yrði aflagður. Gera má ráð fyrir að segja þurfi upp allt að 40 manns, en það samsvaraði því að um 1100 heilbrigðisstarfsmönnum væri sagt upp í Reykjavík.

Það er mikill ábyrgðarhluti af hálfu stjórnvalda að leggja fram svo óraunsæjar tillögur sem aukin heldur valda ótta og skelfingu í þeim byggðarlögum þar sem harðast er borið niður. Sveitarstjórn Skagafjarðar mun leita allra leiða til að standa vörð um störf við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki og þá góðu þjónustu sem hún hefur veitt.

Íbúar í Skagafirði sem annarsstaðar á landsbyggðinni munu ekki una því að samfélagsgerð og velferðarþjónusta sem hefur verið byggð upp í heimabyggð í krafti fleiri kynslóða verði brotin niður á nokkrum mánuðum.

Um leið og Sveitarstjórn Skagafjarðar krefst þess að heilbrigðisráðherra dragi til baka áform um stórfelldan niðurskurð við Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki, hvetur hún ráðherra til samráðs á jafnræðisgrunni við hagsmunaðila í héraði um allar stærri ákvarðanir er varða heilbrigðisstofnunina og fyrirkomulag heilbrigðisþjónustu í Skagafirði,"segir í ályktun sveitarstjórnar.

Ennfremur ákvað sveitarstjórn á sama fundi að halda, í samvinnu við Hollvinasamatök Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki, íbúafund um framtíð Heilbrigðisstofnunarinnar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Húsasmíðameistari.
Tek að mér smíði sumarhúsa. Get séð um frá sökkli að fullbúnu. Fagmennska uppl. ...
IPAD1 64G, 3G og Wifi
Til sölu IPAD1 64G 3G og Wifi, 1,5 árs en lítið notaður, keyptur hjá Iphone.is. ...
SKODA FABIA COMFORT
Skoda Fabia Comfort . Nýskr. 5/2000, ekinn 122 þ.km, bensín,...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
 
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
Útboð
Tilkynningar
Grýtubakkahreppur Útbo...
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....