Ásbjörn fundar með listamönnum

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. mbl.is/Kristinn

Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfsstæðisflokksins, hefur þegið boð stjórnar Bandalags íslenskra listamanna um að koma til fundar við fulltrúa stjórnarinnar í dag í Iðnó kl. 12:15.

Fram kemur í tilkynningu frá BÍL að það sé ekki vanþörf á að uppfræða þjóðkjörna fulltrúa um störf og stöðu listamanna.

Í tilkynningu frá BÍL er vísað til ummæla sem Ásbjörn lét falla í umræðum um fjárlög. Þau eru eftirfarandi að því er fram kemur á vef Alþingis:

„Síðan en ekki síst það sem hæstv. fjármálaráðherra nefndi með tónlistarhúsið, sem er mér mjög lítið að skapi og ég nánast þoli ekki. Auðvitað átti að hætta að byggja tónlistarhúsið og láta það standa sem minnisvarða um þetta rugl sem var hér í gangi (Gripið fram í.) Þetta er algjört rugl. Síðast en ekki síst eitt sem ég gleymdi að koma inn á. Listamannalaun eru hækkuð um 35 milljónir. Af hverju geta þessir listamenn ekki farið að vinna (Forseti hringir.) og komið sér bara í eðlilega vinnu eins og allt venjulegt fólk?“

Meðal þess sem lagt verður fram á fundinum er talnaefni um arðsemi lista og menningar.

Á fundinum verða kynntar fyrstu tölur úr opinberu verkefni sem unnið er að og ætlað er að kortleggja hlut lista og skapandi greina í hagkerfinu.

Fram kemur í tilkynningu að þar komi fram að sjávarútvegurinn velti um 114 milljörðum á ársgrundvelli en menningargeirinn 81 milljarði.

„Stjórn BÍL vonar að fundur hennar  með Ásbirni Óttarssyni verði til þess að slá á þá fordóma og fákunnáttu sem lesa mátti úr ummælum þingmannsins í vikunni. Sameiginlegt verkefni okkar hlýtur að vera að standa vörð um blómlegt og fjölbreytt atvinnulíf,“ segir í tilkynningu.

Vefur BÍL.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert