Mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði á Suðurlandi

Stjórn Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til heilbrigðisstofnana á Suðurlandi. Hún segir að niðurskurðurinn muni draga verulega úr þjónustu heilbrigðisstofnana. Öryggi sjúklinga muni minnka og kostnaður aukast.

Þetta kemur fram í ályktun sem stjórnin hefur samþykkt. Hún er svohljóðandi:

„Stjórn Samtaka  sunnlenskra sveitarfélaga mótmælir harðlega fyrirhuguðum niðurskurði á framlögum til heilbrigðisstofnana á Suðurlandi.   Niðurskurðurinn nemur  um 16, 1% hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands ,   23,8% hjá Heibrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum  og 16 %  hjá Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.
 
Niðurskurðinn leiðir til þess að verulega verður dregið úr þjónustu heilbrigðisstofnana á Suðurlandi, öryggi sjúklinga minnkar og kostnaður þeirra og aðstandenda eykst. Í reynd leggst hefðbundin sjúkrahúsþjónusta af.   Sjúklingar þurfa því að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur sem þýðir að viðbragðstíminn lengist,  ekki síst að vetri til þegar  allra veðra er von.  Þá leiðir niðurskurðurinn til  uppsagna   allt að eitt hundrað einstaklinga.  Niðurskurðurinn er því  reiðarslag fyrir sunnlendinga á fleiri en einn veg. 
 
Í  heild nemur niðurskurðurinn í heilbrigðiskerfinu um 5%.  Það vekur athygli  með ofangreindar  tölur í huga að niðurskurðurinn hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands er einungis 3,1%.  Þá eru  nánast óbreyttar tölur á milli ára hjá Landspítalanum.    Sama gildir um sjúkrahúsið á Akureyri.    Af þessu verður ekki dregin önnur ályktun en sú að tækifærið hafi verið notað til að færa verkefni frá héraðssjúkrahúsunum, að Akranesi undanskildu af einhverjum ástæðum, til Landspítalans og  sjúkrahússins á Akureyri.  Hefur þá ræst langþráður draumur forráðamanna Landspítalans  og treystir málatilbúnað þeirra um nauðsyn byggingar hátæknisjúkrahúss í Vatnsmýrinni.  Stjórn SASS hefur miklar efasemdir um nauðsyn þeirrar byggingar og bendir á að nær væri að nýta þá fjárfestingu betur sem til staðar er á héraðssjúkrahúsunum áður en lagt er út í rándýrar framkvæmdir.  Sérstaklega ætti þetta að vera stjórnmálamönnum ofarlega í huga sem nú glíma við gríðarlegan ríkissjóðshalla. 
 
Þá vill stjórn SASS benda á að ríkið kaupir mikla þjónustu af einkastofum/sjúkrahúsum í Reykjavík  vegna ýmissa aðgerða sem þar eru framkvæmdar sem auðveldlega mætti sinna í stórauknum mæli á héraðssjúkrahúsunum sem þar að auki myndi spara sjúklingum mikinn kostnað og umstang.   Það mætti annað hvort gera með því að færa niðurskurðinn af héraðssjúkrahúsunum yfir á Sjúkratryggingar Íslands eða skylda þá stofnun til að kaupa  þjónustu í stórauknum mæli af héraðssjúkrahúsunum.  Í raun er með þessum fyrirhugaða niðurskurði verið að herða á þeirri einkavæðingarþróun sem hefur orðið í heilbrigðiskerfinu á undanförnum árum.
 
Að lokum mótmælir stjórn SASS  harðlega þeirri aðför  að landsbyggðinni sem felst í umræddum niðurskurðartillögum.  Aðförin er sérstaklega nöturleg í ljósi þess að landsbyggðin hefur átt undir högg að sækja í byggðaþróun á undanförnum áratugum og stjórnmálamenn hvar í flokki sem þeira standa hafa í orði kveðnu viljað stöðva þá þróun eða snúa henni við.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HUMARHLAÐBORÐ - Hafið Bláa - Velkomin !
Humarhlaðborð öll kvöld frá kl. 18.00 - 21.00 Borðapantanir í síma 483 1000. M...
Lenovo spjaldtölva "7 skjár - ný
Til sölu Lenovo spjaldtölva með 7"skjá, 512 MB minni, 16GB disks og Android stýr...
Whippet hvolpar
Hvolpar fæddir 27.04.12 nánari upplýsingar í síma 8603150 og gunnur@simnet.is w...
Bókhald-ársreikningar-skattframtöl
VSK uppgjör, skattframtöl, launaútreikningar, erfðarfjárskýrslur, leigusamningar...
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...