SP hefur lokið fyrsta áfanga endurútreiknings

mbl.is/Ómar

SP-Fjármögnun hefur lokið við fyrsta áfanga endurútreiknings gengistryggðra bílalána og kaupleigusamninga. Í fyrsta áfanga eru samningar þar sem einn og sami skuldari hefur verið frá útgáfudegi samnings.

Fram kemur á vef SP-Fjármögnunar að í dag verði póstlagðir endurútreikningar vegna tæplega 7.000 samninga sem ættu að berast viðskiptavinum félagsins á næstu dögum.

Þá segir að viðskiptavinir SP-Fjármögnunar, sem séu í ofangreindum hópi, geti á morgun föstudag skoðað endurútreikninga sinna lána á www.sp.is.

Vefur SP-Fjármögnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert