VG í Norðurþingi mótmælir niðurskurði
Fundur V-listans, lista Vinstri grænna, félagshyggju- og umhverfisverndarfólks í Norðurþingi, haldinn á Húsavík í kvöld, mótmælir harðlega framkomnum hugmyndum um niðurskurð á fjárveitingum til Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga. Ef af honum verði muni það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir búsetu og mannlíf á öllu starfssvæði stofnunarinnar, bæði í bráð og lengd.
„Með því að leggja niður sjúkrahússtarfsemi á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga væri þjónustan færð fjær íbúum á stóru svæði í Þingeyjarsýslum með tilheyrandi öryggisleysi, óþægindum og útgjöldum fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra. Þar við bætist það ófremdarástand sem hlytist af því að segja yrði 70 manns upp störfum sem jafngildir því að 3000 manns í Reykjavík misstu vinnuna. Þá ber að hafa í huga að HÞ hefur ásamt Framhaldsskólanum á Húsavík, Sýsluskrifstofunni og Náttúrustofu Norðausturlands gegnt stóru hlutverki í að laða ungt fólk til starfa í Þingeyjarsýslum að loknu námi,“ segir í ályktun V-listans í Norðurþingi, sem er í kjördæmi Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra og formanns Vinstri grænna.
Þar segir ennfremur að fyrir liggi að Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sé ekki í stakk búið til að taka við þeirri starfsemi sem ráðuneyti velferðarmála hyggst færa þangað frá Húsavík og öðrum byggðakjörnum á Norðurlandi. Hér sé því á ferðinni leikur að tölum en ekki raunhæf tillaga að leið til að spara almannafé.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Sameiginlegt framboð í Norðurþingi
- Þriðjudagur, 5. október 2010, Innlent Harma aðför að búsetu í Þingeyjarsýslu
- Fimmtudagur, 7. október 2010, Innlent Húsfyllir á Húsavík
- Fimmtudagur, 7. október 2010, Innlent Borgarafundir á fjórum stöðum
- Miðvikudagur, 17. nóvember 2010, Innlent Efast um lögmæti niðurskurðar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































