Dusta rykið af „Guð blessi Ísland"
Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar segir að ef ekki verði tekið með afgerandi hætti á skuldavandanum og ef ekki verði boðað til kosninga þá telji hann að það sé tímabært að dusta rykið af hugmynd fyrrverandi forsætisráðherra Geirs Haarde og biðja Íslandi guðs blessunar.
Þetta kemur fram á bloggi þingmannsins á Eyjunni.
Hann segir að eftir fund með Hagsmunasamtökum heimilanna á þriðjudag virtist sem ríkisstjórninni væri aðeins að snúast hugur og því hafi hann sótt „fimm-ráðherra fund” í gærmorgun ásamt fulltrúa Framsóknarflokksins. „Sá fundur var frekar rýr og þó að Ögmundur Jónasson væri greinilega að reyna að snúa skipinu var greinilegt á hinum ráðherrunum að þau réru ekki í sömu átt.
Við fórum því af fundinum og vorum sammála um að mæta aftur næsta mánudag með því fororði að á þeim fundi yrði að liggja fyrir einhvers konar tímasett verkáætlun um lausn á þessu gríðarlega vandamáli, að öðrum kosti væri betra heima setið.um daginn kom fram að Ögmundur mun reyna að stöðva nauðungarsölur, alla vega að einhverju marki," skrifar Þór.
Þingmenn Hreyfingarinnar munu í dag hitta stjórnarmenn í Hagsmunasamtökum heimilanna síðar í dag og reyna að halda áfram að koma vitrænum sjónarmiðum á framfæri á fundi með „fimm-ráðherra hópnum” á mánudagsmorgun, segir Þór í bloggfærslu í dag.
„Ef hins vegar ekki liggur fyrir þá hvernig og hvenær ríkisstjórnin ætlar að taka á málinu þá lít ég svo á að þetta útspil sé bara enn eitt sviðsett leikritið. Ég vona svo sannarlega að svo sé ekki en sporin hræða og bílasöluræður/yfirlýsingar ráðherra hingað til (utan Ögmundar) gefa ekki mikla von um stefnubreytingu.
Við höfum rætt það í Hreyfingunni að í framhaldi af verkáætlun í skuldavanda heimilanna þyrfti að boða til kosninga og fá fólk með nýtt umboð inn á þing vegna þess algera vantrausts sem ríkir í garð Alþingis. Ég tel það heppilega leið en það kemur í ljós nú um eða eftir helgina hvort við krefjumst hennar. Ef hins vegar ekki verður tekið með afgerandi hætti á skuldavandanum og ekki verður boðað til kosninga þá held ég að það sé tímabært að dusta rykið af hugmynd fyrrverandi forsætisráðherra Geirs Haarde og biðja Íslandi guðs blessunar."
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. september 2009, Innlent Vilja taka þátt í að móta skuldaúrræði
- Mánudagur, 7. mars 2011, Innlent Segir að stöðva þurfi græðgisvæðinguna
- Laugardagur, 16. október 2010, Innlent „Leikritinu er lokið“
- Laugardagur, 26. mars 2011, Innlent Pattstaða um fiskveiðistjórnun
- Þriðjudagur, 12. apríl 2011, Innlent Tillaga um vantraust lögð fram
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































