Hreyfingin vill endurskoða lög um fjármál stjórnmálasamtaka
Þingmenn Hreyfingarinnar munu á næstunni leggja fram lagafrumvarp um breytingar á lögum um fjármál stjórnmálasamtaka sem samþykkt voru á Alþingi þann 9.september s.l. Í fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum í dag gagnrýna þingmennirnir lögin og segja þau í andstöðu við afstöðu meirihluta þjóðarinnar og vísa þar til nýlegrar könnunar Capacent Gallup. Hún leiddi m.a. í ljós að afgerandi meirihluti er andvígur því að íslenskum stjórnmálamönnum og stjórnmálasamtökum sé heimilt að taka við fjárframlögum frá fyrirtækjum.
Hreyfingin vill m.a. banna framlög lögaðila með öllu og hámarka framlög
einstaklinga við 200.000 kr. Einnig leggur hún til að framlög
einstaklinga sem eru hærri en 20.000 kr. verði skráð og opinberuð. Þá
vilja þingmenn flokksins gæta jafnréttis í opinberum framlögum til
stjórnmálasamtaka sem bjóða sig fram til Alþingis og segja engin marktæk
rök vera fyrir því að stór stjórnmálasamtök þurfi meiri framlög en
minni samtök. Þeir leggja einnig til að Ísland leggi bann við auglýsingum stjórnmálasamtaka í ljósvakamiðlum og fylgi þar með stefnu annarra Evrópuríkja.
Í tilkynningunni segir að áheyrnarfulltrúi Hreyfingarinnar hafi reynt að gera breytingar á málinu er það var við vinnslu í allsherjarnefnd en hafi talað þar fyrir daufum eyrum. Frumvarpið hafi verið afgreitt nánast án efnislegrar umfjöllunar þrátt fyrir gagnrýni sem er að finna í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fjármögnun stjórnmálasamtaka. Þingmenn Hreyfingarinnar segja það vekja athygli hversu mikið þingmönnum fjórflokksins hafi legið á að afgreiða málið áður en þingmannanefnd, sem falið var að móta tillögur að viðbrögðum Alþingis við niðurstöðum skýrslu rannsóknarnefndar, hafði skilað af sér skýrslu sinni þann 11.september, tveimur dögum eftir að frumvarpið varð að lögum.
Bloggað um fréttina
-
Magnús Helgi Björgvinsson Ég er að þessu sinni alveg sammála Hreyfingunni! -
Ástþór Magnússon Wium Grundvallaratriði fyrir virku lýðræði
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 28. apríl 2010, Innlent Styður ekki frumvarp um fjármál
- Mánudagur, 30. ágúst 2010, Innlent Gagnrýna afgreiðslu allsherjarnefndar
- Fimmtudagur, 9. september 2010, Innlent Lög um fjármál stjórnmálaflokka samþykkt
- Fimmtudagur, 9. september 2010, Innlent Segja Alþingi hafna niðurstöðu rannsóknarskýrslu
- Föstudagur, 17. desember 2010, Innlent Fjögur stjórnmálasamtök skila reikningum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































