Sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi munu funda með heilbrigðisráðherra, þingmönnum og forsvarsmönnum heilbrigðisstofnana á Suðurlandi klukkan 17 á morgun á Hótel Selfossi.
Sunnlendingar eru hvattir til að fjölmenna fyrir utan hótelið á sama tíma og sýna þar samstöðu með heilbrigðisstofnununum á Suðurlandi. Til samstöðufundarins boða ýmis hagsmuna- og stéttarfélög á Suðurlandi.