Fæðingamet á Akranesi

Akranes.
Akranes.

Fæðingamet, sem sett var á síðasta ári, hefur þegar verið slegið á Sjúkrahúsinu á Akranesi þótt enn sé rúmlega 2½ mánuður eftir af árinu.

Fram kemur á vef Skessuhorns, að í fyrra fæddust 273 börn á fæðingardeildinni en í dag höfðu fæðst 276 börn og eitt var á leiðinni. Haft er eftir Önnu Björnsdóttur, deildarstjóra, að fæðingarnar verði án efa yfir 300 á þessu ári. 

Vefur Skessuhorns

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert