Skothvellir á Akureyri
Lögreglan á Akureyri fékk á þriðja tímanum í nótt tilkynningu frá íbúa í Glerárhverfi í nágrenni stíflunnar yfir Glerá um að hann hefði heyrt þrjá skothvelli sem honum virtist vera ekki langt frá. Síðar komu tilkynningar frá fleirum í næsta nágrenni sem töldu sig einnig hafa heyrt skothvelli.
Lögreglumenn fóru þegar á svæðið og heyrðu þá tvo skothvelli sem virtust ekki vera langt í burtu. Lögreglumenn frá Akureyri og sérsveit ríkislögreglustjóra leituðu svæðið til morguns en urðu einskis varir. Að sögn lögreglu var þoka og lítið skyggni og gerði það leit erfiðari.
Í morgun tilkynnti íbúi í Klettaborg, sem er nýlegt hverfi sunnan við Glerá, um að farið hefði verið inn í íbúðina í nótt á meðan íbúar voru í fastasvefni og stolið þaðan fartölvu, myndavél og tveimur haglabyssum sem voru geymdar í byssuskáp í bílskúr.
Lögreglan segir, að lykillinn að byssuskápnum hafi verið geymdur í íbúðinni og höfðu þjófarnir notað hann til að opna byssuskápinn. Þá tóku þeir talsvert magn af skotfærum sem einnig voru geymd í skápnum.
Segir lögreglan líklegt, að þarna sé komin skýringin á skothvellunum í nótt.
Einnig var farið
inn í nokkra opna bíla í nágrenninu og rótað í þeim. Biður lögreglan á Akureyri
alla þá sem urðu varir við grunsamlegar mannaferðir frá miðnætti til kl. 3 í nótt að láta lögregluna vita í síma 4647700.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Strákagöng lokuð í nótt
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Handtökur eftir skothvelli
- Miðvikudagur, 16. desember 2009, Innlent Fíkniefnamisferli á Akureyri
- Sunnudagur, 27. september 2009, Innlent Fyrsti snjókarlinn?
- Fimmtudagur, 25. ágúst 2011, Innlent Fundu fíkniefni á Akureyri
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































